Salurinn í Kópavogi verður vettvangur fyrir áhugavert tónlistarstefnumót dagana 23. – 25. maí þegar íslenskir og pólskir jazztónlistarmenn taka saman höndum á tónleikum og í jazzsmiðjum.
Verkefninu, sem meðal annars er stutt af menningarsjóði EES, er meðal annars ætlað að efla samtal og samstarf á milli pólskra og íslenskra listamanna en því verður áframhaldið í haust með tónleikum og vinnusmiðjum í Varsjá í Póllandi.
Frá Póllandi koma jazzpíanóleikarinn og lagahöfundurinn Kasia Pietrzko og saxófónleikarinn Maciej Kądziela en frá Íslandi þau Agnar Már Magnússon, píanóleikari, Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassaleikari, Marína Ósk Þórólfsdóttir, söngkona og Matthías M. D. Hemstock. Hópurinn mun leiða ókeypis jazz- og spunasmiðjur fyrir tónlistarnema og tónlistarfólk og bjóða upp á tvenna spennandi tónleika.
Dagskráin fer fram í Salnum og er sem hér segir:
Þriðjudagur 23. maí 2023
13:00 – 14:30 Tónlistarsmiðja með Maciej Kądziela, saxófónleikara
14:45 – 16:15 Tónlistarsmiðja með Birgi Steini Theodórssyni, kontrabassaleikara
Miðvikudagur 24. maí 2023
13:00 – 14:30 Tónlistarsmiðja með Marínu Ósk, söngkonu
14:45-16:15 Tónlistarsmiðja með Agnari Má Magnússyni, píanóleikara
20:00 Kvintett Marínu Óskar Þórólfsdóttur
Marína Ósk, söngur
Kasia Pietrzko, píanó
Maciei Kadziela, saxófónn
Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi,
Matthías M. D. Hemstock, slagverk
Miðaverð: 2500 krónur
Fimmtudagur 25. maí 2023
13:00 – 14:30 Tónlistarsmiðja með Kasia Pietrzko, píanóleikara
14:45-16:15 Tónlistarsmiðja með Matthíasi Hemstock, slagverksleikara
20:00 Kvartett Kasia Pietrzko
Kasia Pietrzko, píanó
Maciei Kadziela, saxófónn
Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi,
Matthías M. D. Hemstock, slagverk
Miðaverð: 2500 krónur
Aðgangur í tónlistarsmiðjurnar er ókeypis en sækja þarf um þátttöku á netfangið [email protected] fyrir laugardaginn 20. maí.
Nánar á www.salurinn.is
Forsíðumynd: Marína Ósk söngkona