GKG fékk endurnýjun sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

GKG fékk endurnýjun á viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á fjölmennri nýliðakynningu félagsins í byrjun maí. GKG fékk fyrst viðurkenninguna árið 2005.

GKG er með eitt öflugasta barna- og unglingastarf landsins hvað varðar golfíþróttina. Það var Viðar Sigurjónsson á stjórnsýslusviði ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Jóni Júlíussyni viðurkenninguna. „Við hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar erum mjög stolt af því að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Hjá okkur í GKG er lögð rík áhersla á faglegt og metnaðarfullt starf á öllum stigum og er viðurkenn- ing sem þessi hvatning fyrir allt okkar starf,“ sagði Jón Júlíusson formaður GKG við þetta tilefni.

Mynd: F.v. Steinunn Ásta Guðmundsdóttir, Viðar Sigurjónsson, Kristín Helga Ingadóttir, Guðjón Frans Halldórsson, Róbert Leó Arnórsson, Karen Lind Stefánsdóttir, Ástrós Arnarsdóttir íþróttastjóri GKG sem heldur á viðurkenningarskjalinu, Markús Árelíus Hannesson og Jón Júlíusson formaður GKG.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar