Hvað er loftmengun og hvað getum við gert til að spyrna við loftmengun á Íslandi?

Hvað er er erindaröð á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli.

Á mivikudaginn kl.12:15- 13 mun Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, fjalla um loftmengun og rýna í muninn á loftgæðum og loftslagi á Náttúrufræðistofa Kópavogs. Um hvaða efni er að ræða og hvað getum við gert til að spyrna við loftmengun á Íslandi? Hver er munur loftgæða og loftslagsbreytinga?

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar