Rúmlega 70% þátttakanda vilja hönnunarsamkeppni um skipulag miðbæjar

Í fréttatilkynningu sem Ólafur Björnsson, formaður Vinir Kópavogs, sendi frá sér um sl. helgi kemur fram að samkvæmt könnun sem Gallup framkvæmdi vilja rúmlega 70 % Kópavogsbúa hönnunarsamkeppni um skipulag miðbæjarins.

Í fréttatilkynningunni segir: ,,Gallup á Íslandi gerði könnun meðal Kópavogsbúa dagana 17. desember 2021 – 26. jan-úar 2022. Það voru íbúasamtökin „Vinir Kópavogs“ sem létu framkvæma hana og kost-uðu að öllu leyti. Niðurstöðurnar voru sláandi og þvert á það sem bæjarstjórn og bæjarstjóri hafa ítrekað látið í veðri vaka.

Þannig lýstu 71.3 % Kópavogsbúa sig hlynnta því að fram færi hönnunarsamkeppni vegna skipulags í miðbæ Kópavogs. 23.3.% tóku ekki afstöðu og 5.4 % bæjarbúa vildu ekki samkeppni, en það var einmitt sú leið sem bæjarstjórn ákvað að fara. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti deiliskipulagið með 6 atkvæð-um gegn 5 þann 20. desember

  1. Samkvæmt könnun Gallup eru 5,4% bæjarbúa hlynnt þeirri leið sem bæjarstjórn samþykkti að fara.
    Hér er um að ræða skipulag á einhverju mikilvægasta og dýrmætasta svæði höfuðbogarsvæðisins. Ljóst er af könnuninni að Kópavogsbúar vilja sjá aðra valkosti en þá sem Skipulagsstofnun kallar “fordæma-lausa þéttingu byggðar á Íslandi.” Kópavogsbúar vilja lifandi og heillandi miðbæ sem gegnir lykilhlutverki í bæjarfélaginu á sviði samgangna, þjónustu, verslunar, atvinnulífs og mannlífs í bænum.
    Valdníðsla er orð sem hér á vel við og sem dæmi má nefna að framkvæmdir sem nú á að ráðast í munu óhjákvæmilega hafa í för með sér skerðingu á lögbundnum rétti fatlaðra íbúa í miðbæ Kópavogs til aðgengis að heimilum sínum.
  2. Kópavogsbúar spyrja sig nú:
  3. ,,Hvað gengur bæjaryfirvöldum til?”
    ,,Hvaða hagsmunir liggja hér að baki?”
  4. Vinir Kópavogs leggja áherslu á að í Kópavogi verði skipulag byggðar unnið í samráði og samtali við bæjarbúa, og að horfið verði frá þeim ljóta vana að hlusta fyrst og fremst á sjónarmið aðila sem hafa (ofsa) gróðasjónarmið í fyrirrúmi. Skipulag á að mynda umgjörð um mannlíf, ekki bara núverandi kynslóða, heldur framtíðarkynslóða Kópavogsbúa.
  5. Vinir Kópavogs eru sannarlega ekki mótfallnir framkvæmdum í miðbæ Kópavogs, það er löngu kominn tími á að hann fái þá reisn sem hann á skilið. Vinir Kópavogs krefjast hinsvegar þess að vandað verði til verka við slíkar framkvæmdir. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða í febrúar 2018 að yfirstefna bæjarfélagsins væri: “Hlutverk Kópavogsbæjar er að tryggja lífsgæði íbúanna með góðri og fjölbreyttri þjónustu. Grunnreglur bæjarins eru skýrar og miða að þvi að allir hafi tækifæri til áhrifa. Kópavogur leggur áherslu á gott mannlíf, skilvirkan og ábyrgan rekstur ásamt öflugu atvinnulífi”.
  6. Svo mörg voru þau orð.
  7. F.h. Vina Kópavogs
  8. Ólafur Björnsson, formaður”

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins