Hugsum vel um eldri íbúa

Það er gæfa að eldast. Flestir sem komnir eru yfir miðjan aldur taka hverju ári fagnandi. Aldur er að mörgu leyti afstæður og snýst ekki endilega um tölu heldur hvernig fólki líður. Margir eru lánsamir að eldast vel og vera virkir, en aðrir þurfa stuðning. Stór hópur Garðbæinga telst til eldri borgara og það á að vera í forgangi hjá sveitarfélaginu að leggja sitt af mörkum til að þessi hópur búi við velsæld og njóti lífsgæða í nærumhverfinu.

Sífellt fleiri eldri íbúar eru virkir lengur, bæði félagslega og líkamlega. Samfélag eldri íbúa í Garðabæ byggir á fjölbreyttum hópi sem setur líflegt mark á bæjarbrag. Garðabær hefur upp á margt að bjóða eins og menningarstarf, veitinga- og kaffihús, sundlaugar, golfvelli, golfherma og fjölbreyttar gönguleiðir innan hverfa og í friðlandinu. Margir eldri íbúar eru í gönguhópum og í boði er t.d. Qi-Gong, dansleikfimi, skák og brids. Einnig hefur verið mikil ásókn í Janusarverkefnið. Nýlega drógu margir eldri borgarar fram gönguskíðin og gengu í sporum á golfvellinum.

Það er mikilvægt að viðhalda líkamlegri og félagslegri virkni enda hefur virkni sannað gildi sitt sem forvörn. Þetta skiptir ekki síst máli núna eftir Covid þar sem margir hafa einangrast og tapað virkni. Ég bind vonir við að hið nýja fjölnota íþróttahús, Miðgarður, verði vel nýtt af eldri íbúum til að hreyfa sig og til félagslegs samneytis. Það er mikilvægt að efla félagsstarf í nærumhverfi fleiri íbúa, sérstaklega í nýjum hverfum. Garðatorg á að vera lifandi og spennandi staður til hittast á. Tilvalið er að nýta yfirbyggðu torgin betur fyrir afþreyingu sem gæti höfðað til eldri íbúa, t.d. mini-golfi, púttvelli, botsía (boccia) eða þægilegum æfingadúk fyrir jóga eða dans. Einnig þarf að vinna markvisst að umbótum í nærumhverfinu í samvinnu við eldri íbúa með það að leiðarljósi að hvetja til virkni, t.d. fjölga bekkjum.

Það eru lífsgæði fólgin í því að geta búið sem lengst heima og viðhalda sjálfstæði. Það þarf að fjölga valkostum í húsnæði fyrir eldri íbúa og í skipulagi huga að minni sérbýlum og rúmgóðum björtum fjölbýlum fyrir fólk sem vill minnka við sig.

Þjónusta við eldri íbúa á að vera einföld, aðgengileg og skilvirk. Það er mikilvægt að eldri íbúar geti reitt sig á stuðningsþjónustu og aðstandendur viti, í annríki dagsins, að ástvinir búi við öryggi og líði vel.

Nýsköpun er mikilvæg til að leita nýrra leiða í velferðaþjónustu þar sem lögð er áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir, auka vitund fólks um ábyrgð á eigin heilsu og umgjörð sem veitir öryggi í eigin búsetu. Huga þarf sérstaklega að aðgengi eldri íbúa að heilsugæslu en sú þjónusta þarf að vera einföld og skilvirk. Það þarf einnig að skoða samþættingu á stuðningsþjónustu sem er á vegum Garðabæjar og heimahjúkrunar sem undir ríkinu.

Stella Stefánsdóttir varabæjarfulltrúi og gefur kost á sér í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar