Ræktun krydd- og matjurta

Boðið verður upp á erindi um ræktun krydd- og matjurta á aðalsafni Bókasafns Kópavogs miðvikudaginn 16. mars kl. 16:30 – 17:30.

Steinn Kárason, garðyrkjumeistari og M.Sc. í umhverfisfræðum, fjallar um sáningu og ræktun algengra og auðræktanlegra krydd- og matjurta. Sagt er frá mismunandi tegundum og afbrigðum og á hvaða árstíma er vænlegast að sá til hverrar tegundar. Þátttakendur fá fræðslu um hvaða ræktunaraðstæður og hvaða aðföng þarf til að ná góðum ræktunarárangri. Fjallað verður um ferlið frá sáningu að neyslu og geymslu, ræktunaraðstæður og aðföng, tegundaval, undirbúning jarðvegs, umhirðu, áburð og vökvun. Er þetta fyrsta erindi af tveimur með Steini á safninu og mun seinna erindið fjalla um íslenskar drykkjar- og lækningajurtir. Verður það haldið þann 30. mars kl. 16:30 – 17:30.

Erindið fer fram í fjölnotasal á 1. hæð aðalsafns. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar