Ný sælkerasamloka hjá Lemon

Spicy Lamb er dúndurgóð sælkerasamloka sem er ný á matseðli á Lemon. Innblásturinn af þessari nýju samloku er sóttur til Indlands og hún ber þess nokkurn keim. Kryddlegið lambakjöt, kóríandersósa, ferskt rauðkál og pestó er það sem gerir þessa samloku svo góða. Bragðmikil og inniheldur allt sem maður þarf til að seðja hungrið og gleðja braglaukana, en þess má geta að Kópavogsbúar hafa verið duglegir að sækja Lemon í Salalaug.

Spicy Lamb er dúndurgóð sælkerasamloka sem er ný á matseðli á Lemon

Gott kombó er gulli betra

Á Lemon er vinsælt að fá sér samloku og djús, svokallað kombó. Spicy Lamb hefur strax slegið í gegn og hefur verið mjög vinsælt að fá sér Presley með henni í kombótilboðinu.
Það er eitthvað við sterka bragðið af lambinu í bland við sæta bragðið af djúsnum sem gerir þetta kombó að hreinum unaði.

Borðum hollt

Lemon er staðurinn fyrir þá sem eru að huga að heilsunni og vilja holla og góða næringu sem fær bragðlaukana til að dansa. Við erum að verða meira og meira meðvituð um hollt og gott mataræði. Og það skiptir máli á tímum sem þessum . Hollar og góðar samlokur og djúsar sem eru stútfullir af vítamínum eru aðalsmerki Lemon. En það er einnig hægt breyta samlokunni og fá hana í vefju, salati eða í ketóbrauði. Það er einnig hægt að fá dásemdarmorgunmat á Lemon, hafragraut, gríska jógúrt og chiagraut. Svo er engiferskotið algjört dúndur, sterkt og gott. Til að toppa þetta er einnig hægt að fá gæðakaffi og köku á Lemon.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins