Stjörnuhlaupið 29. maí

Tvær vegalengdir í boði í Stjörnhlaupinu 2021, 2 og 10 km

Hið árlega Stjörnuhlaup fer fram í Garðabæ þann 29. maí næstkomandi. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 10 km og 2 km, og hefst hlaupið kl. 16:00 frá Garðatorgi.

Hlaupið er frá Garðatorgi kl. 16:00 en 2 km hlaupinu verður ræst heldur seinna. Vinsamlegast mætið tímanlega. Athygli er vakin á því að um nýjar hlaupaleiðir er að ræða. Boðið er uppá tvær vegalengdir, 2 km og 10 km.

Stjörnuhlaupið fer fram laugardaginn 29. maí og hægt verður að velja um tvær vegalengdir, 2km og 10km

Skráning og afhending gagna
Forskráning fer fram á hlaup.is til miðnættis föstudaginn 28. maí nk. Keppnisgögn verða afhent í íþróttamiðstöðinni Ásgarði daginn fyrir hlaup, þ.e föstudaginn 28. maí á milli 16:00 og 19:00. Einnig verður hægt að nálgast hlaupagögn á hlaupadegi á Garðatorgi á milli 13:00 -15:00.

Hlaupaleiðir
Skilti verða við hvern kílómetra bæði í báðum hlaupunum og starfsmenn hlaupsins munu vakta alla helstu staði. Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel leiðina við skráningu.

Hlaupið fer að þessi sinni að langmestu leyti fram á stígum bæjarins. Engu að síður þarf á nokkrum stöðum að fara yfir götur og eru þátttakendur því beðnir um að sýna varúð. Brautarvarsla verður víða og við gatnamót þar sem lokað verður fyrir umferð. Tímatöku og brautarvörslu lýkur 80 mínútum eftir að hlaupin eru ræst.

Nánari upplýsingar er á: stjornuhlaup.is og facebooksíðu hlaupsins

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins