Ingvar Ómars Íslandsmeistari í sex greinum

Nú er keppnistímabilið hér heima hálfnað í hjólaíþróttum og það hefur gengið mjög vel hjá Blikanum, Ingvari Ómarssyni. Hann varð Íslandsmeistari bæði i tímatöku og götuhjólreiðum í lok júní í keppnum sem fóru fram á Akureyri og við Mývatn.

Ingvar tók síðan þátt í Vesturgötunni um þar síðustu helgi og sigraði og sl. föstudag tók hann þátt í Íslandsmótinu í Ólympískum fjallahjólreiðum og sigraði. Ingvar er því núverandi Íslandsmeistari í 6 greinum hjólreiða sem er einstakt afrek.

Ingvar varð fyrst Íslandsmeistari árið 2012 í fjallahjólreiðum og varð 12 sinnum Íslandsmeistari til ársins 2017 með hjólreiðafélaginu Tindi sem hann stofnaði ásamt öðrum. Ingvar er búinn að hjóla með Breiðablik síðan 2018 og hefur orðið 18 sinnum Íslandsmeistari síðan þá og er því samtals kominn með 30 Íslandsmeistaratitla. Ingvar fer síðan í fjögurra daga UCI fjallahjólakeppni í Þýskalandi í byrjun ágúst og verður svo áfram þar til að taka þátt í Evrópumeistarmótinu í götuhjólreiðum og tímatöku. Ingvar er núna númer 77 á heimslistanum í maraþon fjallahjólreiðum og var hæst á topp 50 í byrjun árs. Ingvar mun keppa á heimsmeistaramótinu í maraþon fjallahjólreiðum í september og getur þá bætt stöðu sína aftur á heimslistanum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar