Ert þú næsti bæjarlistamaður Kópavogs?

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um næsta bæjarlistamann og koma einungis þeir einstaklingar til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi. Sá sem verður fyrir valinu tekur þátt í að efla áhuga á list og listsköpun meðal bæjarbúa m.a með viðburði þar sem hans listsköpun er höfð í heiðri.

Ráðið fer yfir umsóknir og ábendingar þar sem fram skulu koma helstu upplýsingar um viðkomandi, nám- og starfsferil og hugmyndir um með hvaða móti listamaðurinn hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa. Styrkupphæð bæjarlistamanns Kópavogs er 1,5 milljónir króna.

Tekið er á móti umsóknum og ábendingum fyrir 16. apríl á netfangið [email protected]

Forsíðumynd: Lilja Sigurðardóttir er bæjarlistamaður Kópavogs 2023 en nú er búið að opna fyrir umsóknir og ábendingum fyrir bæjarslistamann Kópavogs fyrir árið 2024. Á myndinni er Lilja fyrir miðju ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og Elísubetu Sveinsdóttur, formanni Lista- og menningarráðs

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar