Viljayfirlýsing um hjúkrunarheimili fyrir 120 íbúa í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu hjúkrunarheimilis í Kópavogi fyrir 120 íbúa. Stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist á næsta ári og að heimilið verið tilbúið til notkunar árið 2026.

Enn eitt skref í þá átt að bæta aðstæður aldraðra

„Það er einkar ánægjulegt að skrifa undir þessa viljayfirlýsingu. Með þessu fjölgar hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu og við stígum enn eitt skref í þá átt að bæta aðstæður aldraðra sem ekki eru færir um að búa lengur á eigin heimili“ segir heilbrigðisráðherra.

Gert er ráð fyrir að nýja heimilið leysi af hólmi hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð þar sem fyrir eru 70 hjúkrunarrými, þar af 17 tvíbýli. Með nýja heimilinu fjölgar hjúkrunarrýmum í Kópavogi um 50 og öll aðstaða íbúa verður í samræmi við nútímakröfur um húsnæði og aðbúnað.

85% af kostnaðinum greiddur af ríkissjóði

Áformað er að heimilið rísi á lóð Kópavogsbæjar við Kópavogsbraut. Kostnaður við framkvæmdir mun skiptast þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Kópavogsbær greiðir 15%.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins