Vetrarfrí í Kópavogi

17. – 19. febrúar í Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Bókasafni KópavogsLeiðsögn, listasmiðjur, föndur og bíó eru á meðal þess sem verður í boði 17. – 19. febrúar í Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Bókasafni Kópavogs.

Í Náttúrufræðistofu Kópavogs stendur yfir hin metnaðarfulla grunnsýning Heimkynni þar sem fræðast má um undur íslenskrar náttúru. Bláu kubbarnir í Gerðarsafni eru á sínum stað þar sem hægt er að skapa og skemmta sér og opið er á Reykjavík Roasters þar sem hægt er að fá ljúffengar krásir.
Í Gerðarsafni og Bókasafni Kópavogs verður boðið upp á skipulagða dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin er alveg ókeypis og allir velkomnir.

Dagskrá:
Fimmtudagur 17. febrúar
11:00-13:00
Barmmerkjasmiðja á 2. hæð aðalsafn Bókasafns Kópavogs. Teiknaðu hvað sem þér dettur í hug og skelltu því í barmmerki.
12:00-14:00
Leiðsögn fyrir börn um sýningar Gerðarsafns sem endar á listsmiðju með Hlökk og Silju.
13:00-15:00
Perlusmiðja á 1. hæð aðalsafns Bókasafns Kópavogs, ofurhetjur og fleira spennandi.
Föstudagur 18. febrúar
11:00-12:30
3D pennar á 1. hæð aðalsafns Bókasafns Kópavogs.
Virkjaðu sköpunarmáttinn og leyfðu hugmyndafluginu að ráða!
13:00-15:00
Nýi stíllinn keisarans, bíósýning á 1. hæð aðalsafns Bókasafns Kópavogs.

Laugardagur 19. febrúar
13:00-15:00
Sólarprentsmiðja fyrir fjölskylduna undir leiðsögn Hjördísar Höllu Eyþórsdóttur ljósmyndara.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar