Svívirðilegt að næststærsta sveitarfélag landsins skili endurtekið auðu þegar kemur að húsnæði fyrir tekju- og eignaminna fólk

Á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag voru lagðir fram úthlutunarskilmálar vegna úthlutunar sex fjölbýlishúsalóða, alls 184 íbúða, í fyrsta áfanga Vatnsendahvarfs, Roðahvarf númer 2-36 og 1-21, en minnihlutinn í bæjarstjórn gagnrýndi það að Kópavogsbær standi ekki við skuldbindingar sínar í húsnæðismálum í fyrirhugaðri lóðaúthlutun á Vatnsenda.

Allar lóðirnar verða boðnar út og afhentar hæstbjóðanda

,,Á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag samþykkti bæjarstjórn tillögu um að úthluta lóðum undir 184 íbúðir í Vatnsendahvarfi, þar sem allar lóðirnar verða boðnar út og afhentar hæstbjóðanda. Þetta er fyrsta stóra lóðaúthlutunin í Kópavogi síðan árið 2015. Engar lóðir eru skilyrtar fyrir húsnæði á viðráðanlegu verði þrátt fyrir skuldbindingar bæjarins þess efnis,” segir Sigurbjörg Erla Egilsdóttir bæjarfulltrúi og oddviti Pírata.
Sigurbjörg segir að kjörnir fulltrúar eigi að starfa á grundvelli laga og samkvæmt stefnumarkandi samþykktum bæjarstjórnar.

Samkvæmt lögum um húsnæðismál (44/1998) eru helstu verkefni sveitarfélaga á því sviði að:

1) greina húsnæðisþörf
2) gera áætlun um hvernig þörfinni skal mætt og
3) tryggja framboð á lóðum til að mæta þeim áætlunum.

35% skattgreiðenda Kópavogsbæjar eru undir tekju- og eignamörkum og því á að skipuleggja uppbyggingu með þeim hætti að þriðjungur húsnæðis henti þessum íbúum bæjarins

Sigurbjörg Erla Eigilsdóttir oddviti Pírata

,,Í húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar hefur þessi greining á þörfum ólíkra hópa verið gerð og þar kemur fram að 35% skattgreiðenda Kópavogsbæjar séu undir tekju- og eignamörkum. Því þyrfti að skipuleggja uppbyggingu með þeim hætti að þriðjungur húsnæðis henti þessum íbúum bæjarins. Húsnæðisáætlunin fjallar um að leitast skuli við að tryggja fjölbreytt framboð húsagerða og búsetukosta fyrir alla félagshópa. Allir geti orðið sér úti um fullnægjandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði. Þá er meðal annars í forgangi að auka framboð á litlum og ódýrum fasteignum, auðvelda fyrstu kaup og fjölga íbúðakostum, til dæmis með samstarfi við byggingaraðila um uppbyggingu minni íbúða,” segir hún og bætir við: ,,Meðal markmiða í Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sem og Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040, er fjölbreyttur húsnæðismarkaður sem uppfyllir þarfir íbúa. Huga á sérstaklega að framboði á húsnæði á viðráðanlegu verði.

Auk þess var, í sameiginlegu átaki ríkis og sveitarfélaga, undirritaður rammasamningur til þess að mæta þeim hópi sem hefur átt erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn, bæði fyrstu kaupend um og tekju- og eignalægri hópnum. Þar er gert ráð fyrir að 30% nýrra íbúða skuli vera hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði, sem byggðar eru með stofnframlögum frá ríki og sveitarfélögum eða uppfylla skilyrði um hlutdeildarlán,” segir hún.

Gullið tækifæri til að leiðrétta skekkjuna

,,Afgreiðsla meirihlutans á úthlutunarskilmálunum tekur ekkert mið af þessum skuldbindingum og markmiðum, sem byggjast á þeirri reynslu að markaðurinn hefur ekki getað leyst þær fjölbreyttu þarfir sem ungir, tekjulágir, námsmenn og fleiri hópar samfélagsins hafa. Kópavogsbær hefur ekki staðið að almennri lóðaúthlutun í 9 ár en því miður tapast hér gullið tækifæri til að leiðrétta þá skekkju, sem orðið hefur með uppbyggingu fjárfesta á þróunarreitum þar sem arðsemiskrafa er leiðarljósið,” segir Sigurbjörg Erla og bætir við: ,,Mér finnst svívirðilegt að næststærsta sveitarfélag landsins skili end- urtekið auðu þegar kemur að húsnæði fyrir tekju- og eignaminna fólk.”

Forsíðumynd: Minnihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs! F.v. Helga Jónsdóttir, Bergljót Kristinsdóttir, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Kolbeinn Reginsson

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar