Íbúum í Kópavogi fjölgað um 533 á síðustu 10 mánuðum

Íbúum í Kópavogi fjölgar um 533 eða um 1,4% á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. september 2022. Íbúar í Kópavogi voru því orðnir 39.520 1. september sl., en fjölgunin á þessu tímabili er sú næst minnsta ef sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru tekin inn í myndina.

Hutfallslega fjölgar íbúum mest í Kjóshreppi eða um 29 íbúa sem gerir 11,8% fjölgun, en af stærri sveitarfélögunum á höfðurborgarsvæðinu þá er mesta fjölgunin á þessu tímabili í Hafnarfirði, en þar er fjölgunin um 2,2% eða um 654 íbúa. Athyglisvert er að íbúum á Seltjarnarnesi fækkar um 20 eða um 0,4%. Íbúum í Garðabæ og Mosfelssbæ fjölgar um 1,9% og í Reykjavík um 1,6%.

Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 15 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 49 sveitarfélögum. 

Fjölgar í öllum landshlutum nema einum 

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,9% sem er fjölgun um 1.426 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,7% á tímabilinu eða um 870 íbúa. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 5 eða um 0,1%. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 2.0% og Kópavogur er því undir meðaltalsfjölgun á landinu öllu.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar