Urriðaholtssafn opnaði með fjölskyldustund

Urriðaholtssafn er bókasafn, menningar- og upplýsingamiðstöð og er staðsett við Vinastræti 1-3 í Urriðaholtsskóla. Safnið starfar í samstarfi við skólann og þjónar honum og almenningi.
Urriðaholtssafn er útibú Bókasafns Garðabæjar og eru því nú þrjú almenningsbókasöfn í Garðabæ.

Auk Urriðaholtssafn er Álftanessafn staðsett við Eyvindarstaðaveg og aðalsafnið á Garðatorgi 7. Á Urriðaholtssafni gildir hið almenna bókasafnskort og hægt að skila gögnum hér sem hafa fengist að láni á öðrum almenningsbókasöfnum Garðabæjar.

Urriðaholtssafn er opið fyrir gesti og gangandi alla fimmtudag á milli klukkan 13 til 18. Einnig er opið fyrsta laugardag í mánuði á milli klukkan 11 og 15. Afgreiðslutíminn verður svo endurskoðaður á nýju ári.

Laugardaginn 17.september sl. var safnið opnað í fyrsta sinn fyrir gesti. Var þá boðið upp á perlusmiðju fyrir fjölskylduna og boðið upp á léttar veitingar. Margir lögðu leið sína á nýtt safn bæði til að taka þátt í perlusmiðju og ná sér í bækur. 

Ef þú lumar á bók eða bókum sem þú vilt gefa framhalds líf tekur starfsfólk bókasafnsins á móti bókagjöfum í Urriðaholtssafni á afgreiðslutíma. Safnið sækist eftir nýjum eða nýlegum bókum, gefnar út árið 2017 og síðar.

Allir eru hjartanlega velkomnir. Bókasafnið er þinn staður.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar