Hugleiðsla á Bókasafni Kópavogs

Boðið verður upp á hugleiðslu með Thelmu Björk Jónsdóttir á aðalsafni Bókasafns Kópavogs föstudaginn 1. mars kl. 13:00

„Leggjum inn á andlega bankann.“ Gestir sitja á stólum og Thelma leiðir tímann í gegnum öndun, möntrur, tónheilun (og jákvæð inngrip). Tilgangurinn er að auka hamingjuna, virkja okkar innra ljós og eiga stund út af fyrir sig. Hver tími er 30 mín og það er frítt inn.

Thelma Björk Jónsdóttir er menntaður fatahönnuður, listgreinakennari, jóga- og hugleiðslukennari og með diplóma í jákvæðri sálfræði.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar