Endurvinnsla – allra hagur

Markaðsstofa Kópavogs hefur lagt áherslu á heimsmarkmiðin í starfi sínu og hvatt fyrirtæki í Kópavogi til að staðfesta viljayfirlýsingu um innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbæra þróun og vinna þannig að því að gera Kópavog að betri stað til að búa og starfa í. Tólfta heimsmarkmiðið snýr að ábyrgri neyslu og framleiðslu en endurvinnsla er lykilatriði í hringrásarhagkerfinu.

Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989. Hvatinn að stofnun félagsins var náttúru- og umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt yrði að endurvinna umbúðirnar sem smá saman varð að veruleika. Endurvinnslan sér um móttöku allra einnota drykkjarvöruumbúða hérlendis, greiðir út skilagjald, undirbýr til útflutnings og selur til endurvinnslu. 58 starfstöðvar starfa fyrir félagið um allt land.

Tólfta heimsmarkmiðið

Ísland var fyrst í heiminum til að koma á skilagjaldskerfi á landsvísu fyrir allar einnota drykkjarvöru-umbúðir. Frá því fyrirtækið hóf starfsemi hefur árangur söfnunar verið með því besta sem gerist og hefur verið að nálgast 90% skil á ársgrundvelli.

Framlag Endurvinnslunnar til umhverfisverndar er verulegt því vegna skilagjaldsins eru einnota drykkjarumbúðir ekki lengur rusl sem liggur á víðavangi heldur endurvinnanleg verðmæti sem margir hafa fjárhagslegan hag af. Allir geta lagt sitt af mörkum til að halda landinu hreinu, auka nýtingu auðlinda jarðar og bæta viðhorfið til verðmæta, jafnframt því að skapa gjaldeyristekjur.

Endurvinnslan selur úr landi um 1.700 tonn af áli á ári og 1.300 tonn af plasti. Gleri verður safnað í Helguvík og verða flutt út 3.000 tonn í senn a.m.k. 5.000 tonn á ári. Ekki hefur tekist að finna farveg til að endurnýta eða endurvinna gler hér á landi vegna kostnaðar og lítils magns.  Þó að ekki sé enn búið að skylda endurvinnslu glers á Íslandi, tóku framleiðendur sig til og samþykktu að endurvinna gler í skilakerfinu. Slíkt er í takt við stefnu þeirra um hringrásarhagkerfið.

Á heimsvísu hafa helstu gosdrykkjaframleiðendur sett sér markmið um notkun endurunnis efnis í umbúðir sínar og ljóst að það fer vaxandi í framtíðinni. Í raun og veru er hægt að endurvinna drykkjarumbúðir endalaust því engin takmörk eru á því hversu oft er hægt að endurvinna plastflösku eða áldós sé umbúðunum skilað til endurvinnslu.

Í Kópavogi er mótttökustöð Endurvinnslunar á Dalvegi 28

Í Kópavogi er mótttökustöð Endurvinnslunar á Dalvegi 28. Þar er opið virka daga frá 10 – 18 og á laugardögum frá 12 – 16.30. Andvirði skilagjaldsskyldra umbúða er greitt með sjálfvirkri millifærslu á staðnum inn á Debet eða Kreditkort. Aðgengi að móttökustöðinni er gott og því auðvelt að skila af sér umbúðum, fá skilagjaldið og leggja sitt af mörkum til endurvinnslu, betra umhverfis og ábyrgari notkun auðlinda.

Forsíðumynd: Áldósir tilbúnar til útflutnings í endurvinnslu

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar