Ekki farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang eins og undanfarin ár

Í tilefni af árlegri vorhreinsun í Kópavogi hafa verið settir upp opnir gámar fyrir garðaúrgang á fimm stöðum í Kópavogi sem verða aðgengilegir til 20. maí. Ekki verður lengur farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang eins og verið hefur undanfari ár.

Gámarnir verða á eftirfarandi stöðum:

• Kársnes, við Vesturvör 14
• Digranes, við íþróttahúsið Digranesi
• Smára- og Lindahverfi, neðst á Glaðheimasvæðinu, Álalind 2
• Sala- og Kórahverfi, við garðlönd, Rjúpnavegur/ Arnarnesvegur
• Þinga- og Hvarfahverfi, á bílastæði við Vallakór 8

Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt að setja annað í gámana. Byggingaúrgangi, almennur úrgangi, spilliefnum, málmum, gleri og öðru sem tilfellur skal skilað í endurvinnslustöðvar Sorpu.

Garðaúrgangur sem skilinn er við lóðamörk hefur minnkað mjög mikið eftir að byrjað var að koma fyrir gámum í hverf- um. Tími sem gámarnir standa hefur verið lengdur en þeir eru tæmdir reglulega.

Mynd: Undanfarin ár hefur bærinn farið í götur og hirt garðúrgang bæjarbúar en nú hefur orðið breyting á og það hafa greinilega ekki allir áttað sig á þeim breytingum enda er sumstaðar garðúrgangur kominn fyrir utan heimili íbúa í Kópavogi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins