17. júní verður fagnað í Kópavogi á Rútstúni, við Versali og menningarhúsin með glæsilegri hátíðardagskrá.
Hátíðarhöldin hefjast kl. 13.30 með skrúðgöngu frá Menntaskólanum í Kópavogi að Rútstúni með Skólahljómsveit Kópavogs og Skátafélaginu Kópum í broddi fylkingar.
Tívolítæki og hoppukastalar eru hluti af þeirri skemmtun sem boðið verður uppá á öllum hátíðarsvæðunum og eru þau gestum að kostnaðarlausu eins og undanfarin ár. Þá gefst krökkum tækifæri á að prófa veltibílinn sem staðsettur verður við Sundlaug Kópavogs.
Að venju verður 17. júní hlaup í umsjá Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks um morguninn sem hefst klukkan 10.00, ætlað börnum í 1.-6. bekk, þar sem allir fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna.
DAGSKRÁ Á RÚTSTÚNI KL. 14-16
Hátíðarstjórn: Eva Ruza og Hjálmar Örn
- Fjallkona Kópavogs 2023
- Valgerður Guðnadóttir
- Gunni og Felix
- Friðrik Dór
- Eva Ruza og Hjálmar
- Eyrdís og Halaldur úr Draumaþjófinum
- Elísabet Ormslev og Sverrir Bergmann
- Bríet
DAGSKRÁ VIÐ VERSALI KL. 14-16
Hátíðarstjórn: Bland í poka (Saga Garðars og Snorri Helga)
- Bland í poka
- Eyrdís og Halaldur úr Draumaþjófinum
- Elísabet Ormslev og Sverrir Bergmann
- Bríet
- Bland í poka
- Valgerður Guðnadóttir
- Gunni og Felix
- Friðrik Dór
DAGSKRÁ VIÐ MENNINGARHÚSIN KL. 14-17
- Skemmtikraftakarlar
- Húlladúlla
- Krakkahestar
- Söngleikurinn Tjarnarbotn hefst kl. 16:15 í Salnum
- Skapandi sumarstörf
- Götuleikhús