17. júní í Garðabæ – Dagskrá.

Dagskrá verður fyrir alla fjölskylduna á Garðatorgi á 17. júní og tónleikar í sal Tónlistarskólans. Skrúðganga, hoppukastalar, fjallkonan, Gunni og Felix, Kvenfélagskaffi og fleira fjör í boði á Garðatorgi.

Dagskráin í heild sinni:

12:30 Skrúðganga sem Skátafélagið Vífill leiðir ásamt Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar. Gangan fer frá Hofsstaðatúni og gengur að Garðatorgi.

13:00 – 15:00 Dagskrá á sviði á Garðatorgi 4 (göngugatan við hliði apóteks)

  • Forseti bæjarstjórnar býður gesti velkomna og Fjallkona Garðabæjar les ljóð. Blásarasveitin leikur.
  • Gunni og Felix skemmta
  • Prettybojtjokko
  • Dansað um heiminn, danspartý með Friðriki Agna og Önnu Claessen
  • Einar Aron töframaður

13:00-16:00 Hoppukastalar á bílastæðinu Garðatorgi. Skátafélagið Vífill stendur vaktina og einnig verður kandíflos til sölu á göngugötunni Garðatorgi 1.

13:30-15:30 Kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar í Sveinatungu, Garðatorgi 7. Hin rómaða stemning og kræsingar í notalegu umhverfi.

14:00 -15;00 Einar Örn og Matthías Helgi leika ljúfa tónlist fyrir gesti kaffihlaðborðsins.

13:30-15:30 Fánasmiðja og andlitsmálning á Garðatorgi 7

Auk þess:

Álftaneslaug opin frá klukkan 10 – 14.

Aftur til Hofsstaða, margmiðlunarsýning á Garðatorgi 7 opin og fróðleiksfúsir geta leyst þrautir í verkefnabók.

Bókasafn Garðabæjar með ratleik og myndir til að lita í rólegheitum.

Hönnunarsafn Íslands, ókeypis aðgangur á sýningarnar Heimurinn heima, Hönnunarsafnið sem heimili og Nærvera-nýjar endurunnar peysur Ýrúrarí.

20:00 – 21:00 Hljómsveitin Mandólín fer á flakk um allan heim með tónlist sem leikin er á harmonikkur, fiðlur, bassa, gítar og klarinett en meðlimir gleðisveitarinnar syngja einnig. Flutt verður kletzmer- og kvikmyndatónlist, tregafullur tangó og sígrænar ballöður í hátíðarbúningi. Tónleikarnir fara fram í sal Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkjulundi. Aðgangur ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins