Hjartadagshlaup og Hjartadagsganga í Kópavogi

Alþjóðlegi hjartadagurinn er haldinn 29. september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn.

Á Íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill. Í ár er lögð áhersla á að fólk verði hjartahetja með því að lofa sjálfum sér og öðrum að vernda hjartað sitt með einföldum breytingum fyrir hjartaheilsuna. Hvetja fólk í öllum þjóðfélagsstéttum til að sýna gott fordæmi fyrir næstu kynslóð og hugsa um hvað get ég gert núna til þess að passa hjartað mitt og hjartað þitt.

Félögin hafa haldið upp á daginn með hjartadagshlaupi og göngu um árabil í samvinnu við Kópavogsbæ sem hefur boðið þátttakendum í sund að hlaupi loknu.

Hjartadagshlaup og Hjartadagsganga í Kópavogi

Laugardaginn 02. október kl. 10:00 verður hjartadagshlaupið ræst. Boðið er upp á 5 og 10 km vegalengdir og er þátttaka ókeypis. Hlaupið verður ræst frá Kópavogsvelli og liggur hlaupaleiðin um Kársnesið.

Skráning í hlaupið fer fram á www.netskraning.is, Vinsamlegast nálgist gögn í verslunina HLAUPÁR – Rjúpnasölum 1 – Kópavogi, dagana 28. sept – 1. okt. milli klukkan 12-18. Hlaupið hefst klukkan 10:00 og flögutímataka er í hlaupinu. Notaður verður tímatökubúnaður frá Tímataka.net og verða verðlaun veitt fyrir efstu sæti auk útdráttarverðlauna. Frjálsíþróttadeild Breiðabliks sér um framkvæmd hlaupsins. Þegar úrslit liggja fyrir verður hægt að sjá þau á heimasíðum félaganna, timataka.net og á hlaup. is. Þátttakendum verður boðið í sundlaugar Kópavogs að loknu hlaupi.

Arnar Pétursson langhlaupari sér um upphitun fyrir hlaup.

Þann sama dag kl. 9:30 byrjar hjartadagsgangan fyrir þá sem ætla ekki að hlaupa. Gengið verður inn Kópavogsdalinn ca. 2-3 km. Labbað verður af stað fyrir fram stúkuna á Kópavogsvelli.
Hjartasjúkdómar eru fyrirbyggjanlegir og með því að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl má seinka sjúkdómnum og jafnvel koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll.

Hreyfðu þig! Hreyfing þarf ekki að vera bundin við íþróttir eða líkamsrækt og getur verið margs konar, eins og við heimilisstörf, garðvinnu eða einfaldlega að fara út og leika við börnin. Settu þér raunhæf markmið, ekki byrja á því að klífa fjall eða hlaupa maraþon, þú byggir upp þrek og þol smám saman.

Borðaðu hollt! Takmarkaðu neyslu á unnum matvörum sem oft innihalda mikinn sykur, salt og mettaða fitu. Gerðu holla matinn spennandi fyrir börnin, berðu fram litríkan mat eins og ávexti og grænmeti og láttu þau aðstoða við matargerðina. Leiddu hugann að skammtastærðum, notaðu minni matardiska og leyfðu grænmetinu og ávöxtunum að taka mesta plássið.

Segðu NEI við tóbaki! Hafðu reykingarlaust umhverfi. Fræddu börnin þín um skaðsemi tóbaks til að hjálpa þeim að velja líf án tóbaks. Til eru ýmsar leiðir til að hætta að reykja og stundum þarf að leita til sérfræðings.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar