Heilsuhringurinn við Kópavogskirkjugarð

Nýtt skilti við heilsuhringinn í kringum Kópavogskirkjugarð var afhjúpað fimmtudaginn 23.september og hringurinn um leið tekinn formlega í notkun.  Skiltið stendur á horni Fífuhvamms- og Arnarnesvegar.
 
Á skiltinu eru upplýsingar um heilsuhringinn, náttúrufar og útsýnisstaði við hringinn auk þess sem finna má á því hlaupaleiðir í nágrenninu, í ýmsum lengdum.

Á skiltinu eru upplýsingar um heilsuhringinn, náttúrufar og útsýnisstaði við hringinn auk þess sem finna má á því hlaupaleiðir í nágrenninu, í ýmsum lengdum

Heilsuhringurinn við Kópavogskirkjugarð er 1,5 km langur og hafa verið settar við hann merkingar með 100 metra millibili til að auðvelda fólki að átta sig á vegalengdum. Með reglulegu millibili eru 10 áningarstaðir með setbekk þannig að leiðin hentar vel þeim sem heilsu sinna vegna þurfa reglulega að tylla sér og kasta mæðinni. Vatnspóstur eða drykkjafontur er einnig á Heilsuhringnum, nærri Lindakirkju. Þá er að finna æfingartæki á heilsuhringnum fyrir þá sem vilja auka þrek sitt.
 
Í Kópavogi er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreytt útivistarsvæði fyrir alla aldurshópa. Bærinn hefur frá árinu 2015 verið heilsueflandi samfélag og árið 2017 var samþykkt lýðheilsustefna sem hefur þá megináherslu að skapa umhverfi sem hvetur til útivistar og hreyfingu. 
 
Skiltið var afhjúpað í íþróttaviku Evrópu en í ár tekur Kópavogsbær í fyrsta sinn þátt í vikunni. Boðið upp á sjö viðburði í Kópavogi sem stuðla að bættri andlegri og líkamlegri heilsu.

Á forsíðumyndinni eru frá vinstri: Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi sem situr í stýrihópi lýðheilsu, Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri sem einnig er í stýrihópi lýðheilsu, Anna E. Ólafsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsumálum hjá Kópavogsbæ og Ragnar Jónasson formaður félags eldri borgara í Kópavogi.
 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar