Arnar Már kosinn PGA kennari ársins!

Á aðalfundi PGA á Íslandi sem fór fram sl. laugardag var fjölbreytt dagskrá og viðurkenningar veittar.

Kosið var um kennara ársins þar sem félagsmenn tilnefndu PGA kennara og skipuðu eftirfarandi kennarar 5 efstu sætin (í stafrófsröð):
Arnar Már Ólafsson
Davíð Gunnlaugsson
Heiðar Davíð Bragason
Hlynur Geir Hjartarson Snorri Páll Ólafsson

Eftir gífurlega spennandi kosningu félagsmanna varð afreksþjálfari GKG, Arnar Már Ólafsson hlutskarpastur með 29% atkvæða, þar sem aðeins tvö atkvæði skildu efsta sætið frá því þriðja. Arnar Már Ólafsson er þar af leiðandi kjörinn PGA kennari ársins fyrir 2022.

Þetta er í þriðja sinn á seinustu fjórum árum og fjórða sinn í heildina sem Arnar Már hlýtur þessa nafnbót.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar