Vinnukvöld hjá Skógræktarfélagi Garðabæjar

Kristrún og Sigríður Bylgja

Mánudaginn 7. júní komu 11 félagar Skógræktarfélagsins saman til samveru og vinnustundar í útivistarskógunum í Smalaholti og Sandahlíð í Garðabæ.

Hluti hópins bar áburð á eðalplöntur í Smalaholti í nágrenni við trjásýnistíg, sem liggur um svæði þar sem grunnskólabörn gróðursett birki fyrir allt að 30 árum. Skógræktarfélagið ákvað síðan, í framhaldinu þegar skjól hafði myndast á svæðinu, að auka fjölbreytileikann og setja niður ýmsar eðalplöntur sem alla jafna vaxa ekki í Smalaholti enda jarðvegur frekar rýr. Regluleg áburðargjöf hjálpar til við að plönturnar nái að vaxa og dafna á svæðinu.

Hinn hluti hópsins hélt í Sandahlíð þar sem hann vann að grisjun á svæði þar sem víði og greni var plantað. Víðirinn hefur nú lokið hlutverki sínu sem skjól fyrir grenið og því kominn tími til að grisja enda fengu trjáplönturnar aðstoð frá lúpínu sem sá um áburðargjöf á svæðinu.

Að loknu góðu verki var ljúft að setjast niður við nestisborðin á Sandaflöt og fá sér hressingu.
Kristrún Sigurðardóttir

Ragnhildur safnar saman greinum

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins