Viðgerðir kosta 120 milljónir

Stefnt er að því að framkvæmdir við utanhúsviðgerðir á yfirlæknabústaðnum á Vífilsstöðum hefjist á þessu ári, en fjármagn hefur verið tryggt fyrir framkvæmdunum. Áætlaður heildarkostnaður við utanhússviðgerðir eru í kringum 120 milljónir króna samkvæmt greinargerð sem unnin var í ársbyrjun á vegum Ríkiseigna.

Heilsuhælið og mótorhúsið

Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanni Miðflokksins, sem vildi fá að vita hvað hefði verið gert til að vernda eða gera upp yfirlæknabústaðinn á Vífilsstöðum.

Fjósið er friðað

Í svari Bjarna kemur fram að yfirlæknabústaðurinn hafi verið færður í umráð Ríkiseigna frá Landsspítalanum til að hægt væri að tryggja varðveislu eignarinnar, en ástand hennar er lélegt eins og sést á forsíðumyndinni og hefur eignin staðið ónotuð í um árabil. Var Ríkiseignum falið það verkefni að kanna ástand húsa á Vífilsstöðum en þar standa fjórar eignir, gamla heilsuhælið, fjósið, mótorhúsið og yfirlæknbústaðurinn, sem eru friðaðar samkvæmt lögum um menningarminjar en eignirnar eru allar yfir 100 ára.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins