Tríó Sól hefur nýtt menningarár

Miðvikudaginn 4. janúar kl. 12:15 fara fyrstu hádegistónleikar ársins fram í Tónlistarskóla Garðabæjar. Fram koma fiðluleikararnir María Emilía Garðarsdóttir og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir ásamt víóluleikaranum Þórhildi Magnúsdóttur en þær stöllur skipa Tríó Sól. Allar eru þær í framhaldsnámi í Kaupmannahöfn. Tríóið lék á Þjóðlagahátíð á Siglufirði sumarið 2022 og vakti frábær hljóðfæraleikur og skemmtileg sviðsframkoma verðskulda athygli.

Á tónleikunum flytur Tríó Sól Rapsódíu eftir Frank Bridge og Tríósónötu eftir Arcangelo Corelli í útsetningu Sólrúnar Ylfu.

Aðgangur er að venju ókeypis.
 
Tónlistarnæring er röð hádegistónleika sem fer fram fyrsta miðvikudag í mánuði í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Listrænn stjórnandi er Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar