Stöndum vörð um velferð og vellíðan Garðbæinga.

Ég hef búið í Garðabæ í yfir 20 ár með fjölskyldu minni og hér hefur okkur liðið vel í nálægð við náttúrufegurð og gott mannlíf. Í gegnum tíðina höfum við notið þjónustu leikskóla, skóla og íþróttafélaga sem hefur verið til fyrirmyndar, ásamt því að hafa nýtt þau frístundatengdu úrræði sem sveitarfélagið hefur boðið upp á. Allt framantalið hefur vissulega stuðlað að velferð og vellíðan fjölskyldunnar og því eru þau gildi að endurspegla áherslur mínar í komandi prófkjöri.

Ég leita eftir stuðningi ykkar í 4. eða 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu sem fram fer 5. mars næst komandi.

Ég er menntaður rafvirki, hef lokið BS í rafmagnstæknifræði og er auk þess með meistaragráðu í Öryggis- og áhættustjórnun frá Leicester í Englandi.

Á starfsferli mínum hef ég m.a. unnið sem framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og tók virkan þátt í undirbúningi og stofnun hennar og ég starfaði við öryggisráðgjöf hjá eigin fyrirtæki á sinum tíma. Frá árinu 2005 hef ég starfað hjá Verkís verkfræðistofu, lengst af sem hópstjóri og viðskiptastjóri. Þá hef ég setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja, verið í stjórn Almenna lífeyrissjóðsins og sit núna í endurskoðunarnefnd þess sjóðs.

Í gegnum tíðina hef ég haft brennandi áhuga á bæjarmálum í Garðabæ og velferð bæjarbúa og tel mig hafa góða þekkingu og innsýn í marga þætti samfélagsins. Ég var í stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðbæ frá 2010 og formaður 2011 til 2014. Ég hef setið í stjórn almenningsíþróttadeildar Stjörnunnar og er félagi í Rótarýklúbbnum Görðum. Á síðasta kjörtímabili var ég formaður skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar og er enn.

Áherslur mínar á komandi kjörtímabili eru að standa vörð um og efla velferð og vellíðan bæjarbúa á öllum aldri, m.a. með því að standa vörð um áframhaldandi góða fjárhagsstöðu bæjarins, stuðla að auknu öryggi bæjarbúa, hafa snyrtilegt umhverfi í bænum og varðveita náttúruperlur, stuðla að fjölbreyttum valmöguleikum í húsnæðismálum, styrkja menningarlíf í bænum, auka hróður og vinna að stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar, efla grunnþjónustu til bæjarbúa með samráði við íbúa ásamt því að leggja áherslu á stafrænar lausnir í samskiptum.

Garðabær er í örum vexti og íbúar eru ánægðir með að búa í bænum, það kemur skýrt fram í nýrri þjónustukönnun Gallup sem birt er á vef Garðabæjar. Því ber að fagna og slíkt gefur tilefni til að halda áfram á þeirri braut sem unnið hefur verið að á undanförnum árum. Tryggjum áframhaldandi ánægju íbúa í Garðabæ og gerum góðan bæ enn betri.

Af áhuga, eldmóði og heilum hug er ég reiðubúinn að takast á við það krefjandi verkefni sem fylgir því að vera fulltrúi ykkar í bæjarstjórn Garðabæjar. Óska ég því eftir stuðningi ykkar í 4. eða 5. sæti á listanum í komandi prófkjöri.

Eiríkur Þorbjörnsson

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar