Sigurkarl þrammaði með nemendur um Búrfellsgjá

Sigurkarl jarðfræðikennari í FG er duglegur að þramma um lendur skersins með nemendur sína í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og rétt fyrir skólalok skrapp hann með hóp jarðrfæðinema í Búrfellsgjá.
Í tilkynningu frá Sigurkarli segir: ,,Um daginn fóru jarðfræðinemar í lauflétta gönguferð um Búrfellsgjá að Búrfellsgíg þar sem mikil hraun hafa runnið fyrir um 7000 árum og skilið eftir sig mörg hraun eins og Gálgahraun, Garðahraun, Moldu- hraun og Vífilsstaðahraun. Hrauntröðin sem hraunrennslið fór um er ein sýnilegasta og vinsælasta gönguleið landsins. Nemendur fræddust um þennan atburð og fleira í fjölbreyttri jarðfræði landsins.“

Við þetta má kannski bæta að hraunmyndirnar í Búrfellsgjá er geysilega fallegar og er leitun að öðru eins í nágrenni Garðabæjar, sannkölluð náttúruperla. Útivist er líka holl.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins