Ég hef lengi tekið þátt íþrótta- og æskulýðsstarf, sem iðkandi, foreldri, stjórnarmaður og ekki síst stuðningsmaður. Ég brenn fyrir því að Garðabær haldi forystu á þessu sviði. Íþróttir, útivist og öflugt félagastarf eru meðal þess sem einkennir Garðabæ. Við höfum sett stefnuna á heilsueflandi samfélag, þar sem íþróttir, hreyfing og útivist eru í forgrunni.
Nýtum kraftinn í frjálsum félögum
Þessi greinarstúfur myndi ekki endast mér til að telja upp þau frjálsu félög sem standa að samfélaginu hér í Garðabæ. Ég leyfi mér þó að nefna sem dæmi ungmennafélög, golfklúbba, hestamannafélög, siglingaklúbb, skátahreyfinguna, félög eldri borgara og fjölda góðgerðafélaga. Hinn brennandi kraftur og elja sjálfboðaliða í félögunum knýr áfram framfarir og það er hlutverk sveitarfélagsins að ýta undir þá krafta. Samvinnu sveitarfélagsins og frjálsra félaga má þróa þannig að þau taki virkari þátt í tómstundastarfi barna með þjónustu utan skólatíma og með því að flétta barnastarfið betur inn í hefðbundið skólastarf. Börn vaxa að endingu úr grasi og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að með smávægilegum lífsstílsbreytingum má stórefla lífsgæði okkar sem teljast fullorðin. Því þarf Garðabær að vinna áfram að því markmiði að vera í forystu þegar kemur að faglegri vinnu til heilsueflingar eldri borgara. Þá má ekki gleyma að styðja við afreksstarfið, þar sem fyrirmyndirnar verða til sem aftur auka áhuga og elju þeirra sem yngri eru.
Uppbyggingu aðstöðu lýkur aldrei
Um þessar mundir fögnum við opnun Miðgarðs, fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Íþróttaaðstaðan sem fyrir er í bænum hefur líka verið endurbætt undanfarin misseri. Uppbyggingu góðrar aðstöðu lýkur þó aldrei og er áætlað að við Miðgarð rísi síðar tvö íþróttahús og knattspyrnuleikvangur. Við munum byggja íþróttahús og sundlaug við Urriðaholtsskóla, flytja golfvöllinn á Álftanesi og þróa aðra golfvelli áfram. Það er líka mikilvægt að fjölbreytnin og hinar almennu íþróttir fái notið sín. Áframhaldandi uppbygging á stígakerfi, hvort sem er í upplandinu úti við strendur eða þar á milli, er mikilvæg fyrir vaxandi fjölda gangandi, hjólandi og hlaupandi. Einnig þarf að huga að uppbyggingu reiðstíga fyrir hestamenn og auka tækifæri fyrir ástundun vatnaíþrótta svo dæmi séu tekin. Ekki verður allt gert í einu en í Garðabæ verður metnaðurinn að ráða för í góðu jafnvægi við gott skipulag og skynsamlegar áætlanir.
Útivist og íþróttir fyrir alla
Í þjónustu við íbúa til framtíðar þurfum við að byggja á því sem er gott í okkar samfélagi. Með samvinnu félagasamtaka, íþróttafélaga og sveitarfélagsins verður hægt að gera Garðabæ að enn betri stað til að búa á. Sem langhlaupari veit ég að endamarkmiðið er ekki árangur dagsins í dag heldur þarf stöðugt að vinna að enn betri árangri. Það gerum við með metnaðarfullum markmiðum og samvinnu.
Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
Sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.