Ný miðstöð menningar og vísinda opnar í Kópavogi – Náttúrufræðistofa og Barnabókadeild taka stakkaskiptum

Í tilefni opnunar á nýrri miðstöð menningar og vísinda í Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs verður efnt til hátíðarhalda laugardaginn 11. maí kl. 13 til 16.
 
Rýmið sem hýsir Náttúrufræðistofu Kópavogs og barnabókadeild Bókasafnsins hefur tekið algjörum stakkaskiptum á undanförnum mánuðum og verið hannað með meiri samnýtingu í huga þar sem birta og opin rými leika stórt hlutverk. Eitt helsta aðdráttarafl rýmisins er ný grunnsýning Náttúrufræðistofu Kópavogs, Brot úr ævi jarðar, sem verður opnuð af þessu tilefni. Barnabókasafnið hefur verið hannað með náttúruna umleikis safnið í huga þar sem tækifæri gefst tilskapandi hugsunar, lestrarstunda og leikjafyrir börn og fjölskyldur.
Auk þess verður tekið í notkun smiðjurými sem mun nýtast öllum menningarhúsunum til að taka á móti hópum og skipuleggja menningarstarf og viðburði af ólíkum toga.
 
Opnunarhátíðin hefst klukkan 13 með tónum Lúðrasveitar Verkalýðsins. Frá 13 til 16 geta gestir og gangandi tekið þátt í ýmis konar lista- og vísindasmiðjum úti og inni eða bara notið þess að skoða sig um. Boðið verður upp á veitingar fyrir börnin og eru öll hjartanlega velkomin.

Nýtt rými verður tekið í notkun á afmælisdegi Kópavogs.

Börnum gett hátt undir höfði í þessu glæsilega rými

„Það er tilhlökkunarefni að bjóða til opnunarhátíðar sem ber upp á afmælisdag Kópavogsbæjar og vígja þessa glæsilegu miðstöð menningar og vísinda sem er einstök í sinni röð. Fyrir ári síðan boðuðum við nýja nálgun í menningarstarfi okkar og einn liður í því var að leggja aukna áherslu á að efla fræðslu og upplifun barna í menningarhúsum okkar. Við gerum börnum hátt undir höfði í þessu glæsilega rými þar sem gefst tækifæri til sköpunar, leiks og næðis. Tengingin sem myndast á milli Náttúrufræðistofu og Bókasafnsins er öðruvísi, spennandi og áður óþekkt framsetning á Íslandi sem ég er fullviss um að Kópavogsbúar og aðrir gestir kunna vel að meta,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs. 
 
Hafist var handa við undirbúning breytinganna fyrir ári síðan og var meðal annars efnt til hugmyndasöfnunar meðal íbúa um nýtt sameinað rými Bókasafns og Náttúrufræðistofu.
 
Theresa Himmer arkitekt hefur hannað breytingarnar á húsnæðinu en sýningarteymi sýningarinnar Brot úr ævi jarðar skipa Brynhildur Pálsdóttir, Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir), Theresa Himmer, Hulda Margrét Birkisdóttir, Sævar Helgi Bragason, Júlía Kristín Kristinsdóttir, Cecilie Gaihede, Brynja Sveinsdóttir.
 
Forsíðuljósmyndin sýnir húsnæði Náttúrufræðistofu og Bókasafns Kópavogs.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins