Sigvaldi býður sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi

Sigvaldi Egill Lárusson fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar býður sig fram í 2. – 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sem fram fer 12. mars næstkomandi.

Sigvaldi er 36 ára fjölskyldufaðir á Kársnesinu, er í sambúð með Hrefnu Sif Jónsdóttur framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Tix. Sigvaldi á stjúpdótturina Elmu, sem verður 8 ára í sumar og er í Kársnesskóla og soninn Lárus, en hann er að verða 3 ára og er á leikskólanum Urðarhól. Sigvaldi þekkir því umgjörð barnafólks í Kópavogi vel og hefur mikinn áhuga á að gera gott betra.

Ástæða þess að Sigvaldi býður fram þjónustu sína er brennandi áhugi á að hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Að vera stöðugt að leita leiða til að gera enn betur og bæta þjónustu við íbúa bæjarins.
„Ég tel að reynsla mín, menntun og það viðhorf að vera stöðugt að gera betur hafi fullt erindi í bæjarstjórn Kópavogs, með það að markmiði að þjónusta íbúa bæjarins sem best með þeirra hagsmuni ávallt að leiðarljósi.“ segir Sigvaldi.

Áherslumálin eru fyrst og fremst málefni fjölskyldunnar, leikskólamálin, velferðarmál og hagkvæmni og skilvirkni í rekstri með sem lægstar álögur á íbúa og fyrirtæki. Sigvaldi leggur metnað sinn í það að umgjörð og þjónusta við fjölskyldur og sérstaklega barnafólk í Kópavogi verði með besta móti og við séum stöðugt að leita leiða til að gera þar enn betur. Hann telur að með þessu bætum við samfélagið okkar, aukum lífsgæði hjá ungum sem öldnum og löðum til okkar fjölbreyttar fjölskyldur í bæinn. 
Sigvaldi hefur starfsreynslu bæði frá einkageiranum og þeim opinbera. Hann hefur starfað samanlagt í 6 ár sem fjármálastjóri hjá hinu opinbera. Þar af þrjú ár sem fjármálastjóri hjá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands og núverandi starf hans er fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar.

Sigvaldi er með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann hefur alltaf verið óhræddur að sækja sér aukna þekkingu og tekið ótal námskeið bæði lengri og styttri. Í dag er hann í náminu verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun sem hann stefnir á að klára núna í vor. Sigvaldi er einnig í stjórn faghóps straumlínustjórnunar (lean) hjá Stjórnvísi.

Sigvaldi óskar eftir stuðningi Sjálfstæðismanna í Kópavogi í 2.-3. sætið í prófkjörinu sem fram fer 12. mars næstkomandi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar