KFG leikur til úrslita á Laugardalsvelli á fotbolti.net mótinu

Á föstudagskvöld klukkan 19:15 mætast KFG (Knattspyrnufélag Garðabæjar) og Víðir í Garði í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins á Laugardalsvelli og veður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. 

KFG endaði í 8. sæti 2. deildarinnar í sumar. Liðið rúllaði yfir Sindra 5-1 í 1. umferð Fótbolti.net bikarsins og vann svo 2-0 útisigur gegn grönnum sínum í Augnabliki í 16-liða úrslitum.  KFG mætti svo ÍH í Hafnarfirði í 8-liða úrslitum, sá leikur endaði 2-2 og fór alla leið í vítakeppni þar sem KFG vann 3-2 sigur. Liðið fór austur í undanúrslitum um sl. helgi og vann gríðarlega öflugan 1-0 útisigur á KFA. 

Víðismenn enduðu í 4. sæti 3. deildarinnar í sumar. Þeir sátu hjá í 1. umferð Fótbolti.net bikarsins en komu inn í 16-liða úrslitum þar sem þeir rúlluðu 5-1 yfir Hvíta Riddarann.  Í 8-liða úrslitum vann Víðir 2-0 sigur gegn Völsungi og svo 2-1 sigur gegn KFK í undanúrslitum sl. laugardag

Spennandi verður að sjá hvort KFG verði fyrsti sigurvegarinn í þessari nýju keppni sem er bikarkeppni neðri deilda.  Nú er um að gera að mæta á völlinn og styðja við strákana. Verður bara stemmning!

95% leikmanna eru uppaldir Stjörnumenn, eru sigurvegarar og eiga langflestir titla í yngri flokkum á ferilskrá sinni

Tvíburabræðurnir Björn og Kristján Mássynir þjálfa Garðabæjarliðið en þeir spjölluðu við Arnar Laufdal fréttamann Fótbolta.net á Laugardalsvellinum í gær. 

Þeir tala um að þessi nýja keppni verði væntanlega enn meira keppikefli fyrir félög í neðri deildum þegar þau sjá hversu glæsileg umgjörðin er.  „Það er alvöru gulrót fyrir liðin í neðri deildunum að geta keppt um alvöru bikar.“

Víðismenn spila á náttúrulegu grasi en heimavöllur KFG er gervigras. Gefur það Víði forskot fyrir leikinn á föstudag?  „Þetta gras er nú það gott, við höfum spilað grasleiki á misjöfnum völlum í sumar. Þetta gæti verið eitthvað forskot fyrir þá en ég held að það muni ekki skipta neinu máli því þetta er svo flottur völlur hvort sem er.“

Það má búast við góðri mætingu úr Garðabænum en nánast allir leikmenn KFG koma upp úr yngri flokka starfi Stjörnunnar.  „Við munum spila á okkar sterkasta liði. Okkar lið má eiga það að þetta eru 95% uppaldir Stjörnumenn og eru sigurvegarar. Þeir eiga langflestir titla í yngri flokkum á ferilskrá sinni.“

Björn og Kristján þjálfarar KFG eru eðlilega spenntir fyrir leiknum.

MYND: FÓTBOLTI.NET – HAFLIÐI BREIÐFJÖRÐ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar