Hesthúsalóðir á Kjóavöllum lausar til úthlutunar

85 ný hesthús með að hámarki 1600 hross

Garðabær auglýsir lausar til úthlutunar hesthúsalóðir á Kjóavöllum, við göturnar Sunnuvelli og Æsuvelli. Alls er um að ræða um 20 lóðir. Einstaklingar sem og lögaðilar geta sótt um hesthúsalóðirnar.

Á Kjóavöllum er hesthúsahverfiog athafnasvæði hestamannafélagsins Spretts með reiðhöll og íþróttaleikvangi fyrir hestaíþróttir. Garðabær og Kópavogsbær hafa sameiginlega staðið að samþykkt deiliskipulags fyrir hesthúsahverfi og íþróttaleikvang að Kjóavöllum. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að innan bæjarmarka Garðabæjar muni rísa 85 ný hesthús með að hámarki 1600 hross sem byggjast upp á næstu árum. Fyrir eru 23 hesthús í Andvarahverfi.

Rafrænar umsóknir

Umsóknareyðublað fyrir hestahúsalóð á Kjóavöllum er rafræn og aðgengileg hér á Þjónustugátt Garðabæjar (innskráning með rafrænum skilríkjum). Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2021.
Fyrirvari um uppbyggingu og úthlutun er að nógu margar umsóknir berist til að hægt verði að byggja öll hús við amk eina götu.

Úthlutun fyrir lok júní

Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun fyrir lok júní og gert ráð fyrir að lóðir verði afhentar og byggingar hæfar í upphafi árs 2022.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins