Garðabær tilbúinn að endurskoða gjaldskrár til að liðka fyrir kjarasamningum

Bæjaráði Garðabæjar hefur borist tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarféla-ga varðandi stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga í mars 2024.

Í tilkynningunni kemur fram að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafi skrifað undir yfirlýsingu um stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga. Yfirlýsingin var gerð til að greiða fyrir gerð langtímakjarasamninga á vinnumarkaði með það að markmiði að kveða niður vexti og verðbólgu.

Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að sveitarfélög komi að því á samningstímanum ásamt ríkinu að brúa bilið milli fæðingar- orlofs og leikskóla og að útfærð verði leið til að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar frá og með ágúst 2024 til loka samningstímans. Komi til þess mun ríkið greiða kostnaðarþátttöku sem gæti á landsvísu numið 4,0 milljörðum.

Fram kemur að ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga muni útfæra þetta og mun vinna við það fara af stað á næstu dögum og verða nánari upplýsingar þegar nær dregur.

Miða skuli við að hækkun þessa árs verði ekki umfram 3,5 %

Þá er því beint til sveitarstjórna að endurskoða gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Miða skuli við að hækkun þessa árs verði ekki umfram 3,5 %. Þá verði gjaldskrárhækkunum stillt í hóf eins og nokkur kostur er á samningstímanum.

Garðabær leggur áherslu á barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu er gjaldskrár verða endurskoðaðar

„Bæjarráð Garðabæjar fagnar því að nú er tækifæri til að allir aðilar á vinnumarkaði sameinist um skynsamlega langtíma kjarasamninga með áherslu á minni verðbólgu, lægri vexti, aukinn fyrirsjáanleika og þar með að skapa skilyrði fyrir stöðugleika í íslensku hagkerfi. Mikilvægt er að atvinnurekendur, þ.m.t. sveitarfélögin, og öll stétt- arfélög á almennum og opinberum markaði lýsi yfir stuðningi við það fordæmi sem skapast hefur. Bæjarráð lýsir yfir vilja til að taka þátt í þeirri vegferð, meðal annars með endurskoðun gjaldskráa ársins 2024 með áherslu á barnafjölskyldur og fólki í viðkvæmri stöðu.“

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar