Söngkeppnin VOX DOMINI 2024 – Rödd ársins valin

VOX DOMINI er eina söngkeppni sinnar tegundar á Íslandi og er haldin annað hvert ár. Úrslitakeppnin fer fram í Salnum, 17. mars kl. 19:30-22:00 og býður upp á fjölbreytta efnisskrá fyrir áheyrendur þar sem söngvarar framtíðarinnar, flytja ljóð, aríur og lög eftir tónskáld ársins. Tónskáld VOX DOMINI 2024 er Hildigunnur Rúnarsdóttir.

Söngkeppnin VOX DOMINI fer fram helgina 16. til 17. mars og fer úrslitakeppnin fram seinni daginn í Salnum. VOX DOMINI er eina söngkeppni sinnar tegundar á Íslandi og er haldin annað hvert ár. Hún er ætluð lengra komnum nemendum í klassískum söng og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á söngferlinum. Keppt er í þremur flokkum og þrenn verðlaun veitt í hverjum flokki ásamt því að einn keppandi hlýtur útnefninguna Rödd ársins.Einnig velja áhorfendur úrslitakeppninnar sinn uppáhaldssöngvara og eru honum veitt áhorfendaverðlaun. Úrslitakeppnin býður upp á fjölbreytta efnisskrá fyrir áheyrendur þar sem söngvarar framtíðarinnar, flytja ljóð, aríur og lög eftir tónskáld ársins. Tónskáld VOX DOMINI 2024 er Hildigunnur Rúnarsdóttir. Keppnin er haldin á vegum Félags íslenskra söngkennara.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar