Garðabær í sterkri stöðu

Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur fagnað góðu gengi um langt skeið. Fyrir það við erum við afar þakklát og tökum stuðningi bæjarbúa aldrei sem gefnum hlut. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn rúm 62% atkvæða sem er talsvert umfram fylgi flokksins á landsvísu og hér í kjördæminu. Það sýnir að bæjarbúar kunna vel að meta okkar áherslur og ef þið viljið halda í þær biðjum við enn á ný um ykkar stuðning.

Áframhaldandi velgengni – nýliðun í bland við mikla reynslu

Það er vor í lofti og nú er nýafstaðið prófkjör í okkar hópi sem tryggði æskilega nýliðun í bland við mikla reynslu. Með sanni má segja að það verða kynslóðaskipti í hópi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Slíkum tímamótum fylgir ný og fersk sýn og óbeislaður kraftur, þótt við munum áfram byggja okkar starf á traustum grunni þeirra sem á undan fóru. Við höfum áfram það meginmarkmið að tryggja að Garðabær verði meðal þeirra sveitarfélaga sem best þykja standa sig á öllum sviðum. Við hvorki erum né verðum laus við áskoranir og flókin úrlausnarefni, fremur en aðrir á þeirri vegferð, en þegar markmiðið er skýrt aukast líkur á árangri.

Við höfum alltaf lagt áherslu á að heyra frá bæjarbúum um verkefnin og þjónustuna í bænum. Þess vegna er það ánægjulegt að íbúar gefa þjónustunni mjög háa einkunn í árlegum þjónustukönnunum. Ég tel að skýra megi velgengni Garðabæjar með þrenns konar hætti. Í fyrsta lagi hefur uppbygging þjónustu og innviða haldist í hendur við uppbyggingu hverfa. Íbúar hafa getað treyst því að skólar, leikskólar og önnur þjónusta þróist í góðum takti við fjölgun íbúa. Í öðru lagi byggir fjármálastjórn bæjarins á lágum álögum á íbúa en á sama tíma góðum rekstri og ábyrgri skuldastefnu. Þetta hefur skilað sér í getu Garðabæjar til að byggja upp nauðsynlega innviði án þess að senda skattgreiðendum framtíðar reikninginn. Í þriðja lagi hefur verið lögð áhersla á góða aðstöðu fyrir skólastarf, íþróttir, útivist, félagsþjónustu og fleiri málaflokka. Þannig er alltaf í forgrunni að fagfólkið okkar hafi góða starfsaðstöðu og tækifæri til að þróa sitt starf til að auka megi gæði og fjölbreytileika, bæjarbúum til heilla.

Framtíðin er björt í Garðabæ

Við höfum ríka ástæðu til að horfa björtum augum fram á veg. Ólíkt mörgum sveitarfélögum er fjárhagsstaða Garðabæjar sterk og traust. Við höfum burði til að fjárfesta og létta undir með íbúum, eins og sannaðist í heimsfaraldrinum. Ný hverfi eru að rísa vítt og breitt um bæinn sem verða byggð af miklum metnaði og nú eigum við Miðgarð sem gjörbreytir aðstöðu til fjölbreyttrar íþróttaiðkunar fyrir bæjarbúa. Við höfum tekið stór græn skref fram á við í rekstri bæjarins og friðlýst fleiri náttúruperlur í bæjarlandinu. Þessi opnu grænu svæði eru uppspretta lífsgæða okkar og komandi kynslóða. Verslun og þjónusta er að styrkjast í bænum, ekki bara á Garðatorgi heldur um allan bæ.

Það er spennandi að búa í Garðabæ því hér eru möguleikarnir miklir. Hvort sem við erum fædd hér og uppalin eða höfum valið okkur að flytjast hingað þá finnum við í hjarta okkar að við erum stolt af því að vera Garðbæingar og viljum bænum okkar allt hið besta. Það endurspeglast í bæjarbragnum, sem getur verið erfitt að festa orð á en einkennist af blöndu samheldni, jákvæðni, metnaði og náungakærleik. Sem nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins mun ég ekki láta mitt eftir liggja og er ég stoltur af því að leiða öfluga sveit frambjóðenda á fund ykkar bæjarbúa. Saman munum við móta framtíð bæjarins, sameiginlega framtíð okkar Garðbæinga.

Almar Guðmundsson
Bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar