Garðabær fyrir unga fólkið

Garðabær hefur löngum verið eftirsóttur staður á meðal ungs fólks sem er að hefja fjölskyldulíf. Þannig var það í upphafi þéttbýlismyndunar hér á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar og þannig er það enn í dag. Íbúaþróun í Urriðaholti ber þess skýr merki.

Við í Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ viljum halda áfram á þeirri braut að gera ungu fólki kleift að kaupa sína fyrstu eign hér í Garðabæ, festa hér rætur og stofna fjölskyldur í barnvænu og lifandi samfélagi.

Fjölskylduvænt samfélag

Garðabær hefur frá upphafi verið skipulagður með fjölskyldur og börn í huga. Börnin valsa örugg um bæinn, hjóla um stíga eða sparka bolta á undan sér. Þau ganga í framúrskarandi leik- og grunnskóla og hafa fjölbreytt val um íþróttir og tómstundir á vegum frjálsu félaganna í bænum.

Höldum Garðbæingum í Garðabæ

Það er okkur hjartans mál að Garðabær verði enn á ný raunverulegur valkostur fyrir ungt fólk sem er að taka sín fyrstu skref á fasteignamarkaði.

Það þarf að tryggja fjölbreytt framboð af íbúðum af öllum gerðum sem henta mismunandi fjölskyldueiningum. Það gekk vel í Urriðaholti þar sem heillandi og blönduð byggð hefur risið. Samgangur eldri og yngri íbúa hverfisins er þar sjálfsagður hlutur daglegs lífs og verslanir og þjónusta hefur sett fallegan blæ á hverfið. Með þá hugsun í farteskinu skipuleggjum við ný hverfi, eins og í Vetrarmýri og Hnoðraholti.

Framúrskarandi leikskólar

Leikskólastarf í Garðabæ er rómað og það er ekki af ástæðulausu. Starfsfólkið okkar í leikskólunum er framúrskarandi og við þurfum að halda áfram að hlúa að því og þróa starfsumhverfið í samráði við það.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur fast í þá stefnu að tryggja 12 mánaða börnum pláss á leikskólum bæjarins. Það var kerfið sem við byggðum upp og okkar metnaður er að viðhalda. Mikil fjölgun á meðal ungs fólks með börn á leikskólaaldri í Urriðaholti kom vissulega á óvart, en fjöldi þeirra gekk þvert á allar spár. Börn í Garðabæ hafa þó áfram fengið pláss á leikskóla fyrr en í nágrannasveitarfélögunum og með boðuðum aðgerðum verður 12 mánaða markinu náð að nýju síðar á árinu. Nýr átta deilda leikskóli, Mánahvoll, hefur risið og annar nýr sex deilda leikskóli fyrir allt að 120 börn mun taka til starfa í Urriðaholti haustið 2022.

Þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn komið á tekjutengdum afslætti og systkinaafslætti af leikskólagjöldum, en það var gert til að koma til móts við barnafjölskyldur með lágar tekjur með það að markmiði að bæta kjör fjölskyldna.

Íþróttabærinn Garðabær

Garðabær er þekktur fyrir frábært og framsækið íþróttastarf. Frjálsu félögin okkar eru með þeim öflugustu á landinu og það er bæjarins að stuðla að því að íþróttastarfið verði hér sem allra best. Það er gert með uppbyggingu og viðhaldi á íþróttamannvirkjum, góðum og öruggum tengingum í formi hjóla- og göngustíga við íþróttasvæðin okkar, en líka með góðu skipulagi hvatapeninga.
Við þurfum líka að mæta börnum sem finna sig ekki í hefðbundnu íþrótta- og tómstundastarfi. Bærinn verður að halda utan um þessi börn og finna þeim farveg til aukinnar lífsgleði og hamingju.

Framsækin framtíðarsýn fyrir Garðabæ!

Við leggjum þessa framsæknu framtíðarsýn þar sem byggt er á því sem vel hefur gert í fortíðinni undir þig, kjósandi góður, og hvetjum þig til að setja X við D, 14. maí næstkomandi.

Margrét Bjarnadóttir og Hrannar Bragi Eyjólfsson,
Skipa 4. og 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar