Fræðir og hræðir Garðbæinga!

Gos í garði Garðbæinga! Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur fræðir og svarar spurningum í Bókasafni Garðabæjar mánudaginn 17. maí kl.18

Garðbæingar horfa á eldgosið á Reykjanesi út um gluggann heima hjá sér. Í Garðabæ eru líka mikil ummerki eldgosa og bærinn umvafinn hrauni.

Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur fræðir (og hræðir) Garðbæinga um eldgosið í Geldingadölum í Fagradalsfjalli. Hann skoðar og segir aðeins frá hraunlögunum í okkar sveit og svarar kannski spurningunni um hvort líkur séu á að jörðin opnist undir fótum Garðbæinga?

hefur einstakt lag á að útskýra flókin jarðvísindin á þann hátt að allir skilja og hrífast með

Páll er landsþekktur og hefur einstakt lag á að útskýra flókin jarðvísindin á þann hátt að allir skilja og hrífast með. Páll er prófessor emeritus við jarðvísindadeild Háskóla Íslands og hefur rannsóknaraðstöðu við Jarðvísindastofnun Háskólans.Rannsóknir Páls eru á sviði jarðvísinda og fjalla um jarðskorpuhreyfingar, jarðskjálfta, eðlisfræði eldgosa og kvikuhreyfinga, innri gerð eldstöðva og gerð jarðskorpunnar í heild.

Allir velkomnir og að sjálfsögðu verður öllum reglum um sóttvarnir fylgt.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins