Ég býð mig fram til að leiða Garðabæjarlistann

Ég hef setið í bæjarstjórn Garðabæjar frá árinu 2018 og var varabæjarfulltrúi frá 2014 – 2018. Ég er kennari að mennt og kenndi náttúrufræði og íþróttir við Garðaskóla 2003-2006 og eftir það hef ég starfað við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og kennt þar við íþróttabraut skólans. Í haust hóf ég nám í opinberri stjórnsýslu við HÍ, námið hefur verið fræðandi og mun tvímælalaust efla mig í störfum mínum.

Ég legg mikla áherslu á að Garðabær verði í fremstu röð sveitarfélaga þegar að kemur að þjónustu við íbúa. Ég vil sjá gjaldtöku á barnafjölskyldur lækka til muna, efla félagsþjónustu en frekar og auka framboð íþrótta og tómstunda fyrir jafnt unga sem aldna. Huga þarf vel að stígakerfi og almenningssamgöngum innan bæjarins og gæta þarf að því að haldið sé í sérstöðu hverfa bæjarins, skipulag og framkvæmdir eiga að vera gerð í sátt við íbúa og umhverfi. Að mínu mati er einnig mikilvægt að tryggja að uppbygging grunn- og leikskóla fylgi íbúaþróun bæjarins og nauðsynlegt er að bæta starfskjör þeirra sem þar vinna til að tryggja mönnun. Ég mun halda áfram að berjast af fullum heilindum fyrir bættu samfélagi.

Ég hef sterkar taugar til íþróttafélaga bæjarins. Hef spilað leiki með nánast öllum deildum Stjörnunnar ásamt því að þjálfa fyrir félagið. Einnig hef ég þjálfað öldungablak á Álftanesi og veit að þar er verið að vinna flott starf í þágu íbúa. Það er mikilvægt að hlúa vel að öllu félagsstarfi í bænum og tryggja aðgang íbúa að því starfi óháð efnahag ásamt því að tryggja félögum aðstöðu við hæfi.

Ég er uppalinn Garðbæingur og fjögurra barna faðir og hef kynnst vel þeirri þjónustu sem sveitarfélagið er að veita. Það er mikilvægt að sveitarfélögin sem hafa það hlutverk að þjónusta íbúa sína gera það sem allra best. Þess vegna er mikilvægt að hlusta á íbúana og taka mið af þeirra þörfum.

Hlutverk þess sem leiðir Garðabæjarlistans er að samstilla hópa af fólki sem kemur úr ýmsum áttum og leiða til góðra verka. Ég hef töluverða reynslu af slíku starfi og hef trú á okkar fólki. Í Garðabæjarlistanum er mikill mannauður og reynsla sem kemur til með að nýtast okkur vel til að ná settum markmiðum. Ég hvet alla áhugasama til að koma og starfa með okkur. Áhugasamir geta haft samband í gegnum tölvupóstfang [email protected].

Ingvar Arnarson bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar