Brautskráning fór fram í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ laugardaginn maí síðastliðinn.
Af þeim 116 sem útskrifuðust voru 28 af náttúrufræðibraut, 21 af viðskiptabraut, 20 af félagsvísindabraut, 16 af listnámsbrautum, 13 af íþróttabraut, 11 af hönnunar og markaðsbraut, fjórir af alþjóðabrautum og þrír með lokapróf frá FG.
Dúx varð Agnes Ómarsdóttir, með 9,8 í meðaleinkunn og semi-dúx varð Bjarni Hauksson, með 9,5 í meðaleinkunn. Alls voru sjö nemendur með 9.0 eða hærra í meðaleinkunn að þessu sinni.

Samfélagsverðlaun skólans fékk Guðmundur Grétarsson Magnússon, en þau verðlaun fær nemandi sem sett hefur sérstakan og skemmtilegan svip á skólann. Hann flutti einnig frumsamið lag í einu tónlistaratriða athafnarinnar, en athöfnin hófst með því að Sesselja Ósk Stefánsdóttir flutti lagið Turn Me On, eftir Noruh Jones. Sesselja sigraði fyrir skömmu Söngkeppni framhaldsskólanna. Ávarp nýstúdents flutti Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir.

Á þriðja tug nemenda fékk verðlaun fyrir góða skólasókn og fleiri nemendur hlutu verðlaun í allskyns námsgreinum.
Kristinn Þorsteinsson, skólameistari, kom víða við í ræðu sinni og ræddi allt frá málefnum hinsegin fólks til gervigreindar, sem mikið hefur verið rædd í samfélaginu að undanförnu.
Þá kom hann einnig inn á málefni um sameiningar á framhaldsskólum, en sagði að ávinningurinn af slíku þyrfti að liggja fyrir áður en farið væri út í slíkt.

Í athöfninni fengu þrír starfsmenn gullmerki FG, fyrir áratuga störf við skólann, en þetta voru þau Guðmundur Ásgeir Eiríksson, netstjóri, Ingibjörg Ólafsdóttir myndlistarkennari og Snjólaug Bjarnadóttir, aðstoðarskólameistari.
Nýr aðstoðarskólameistari hefur verið ráðinn til FG en það er Anna María Gunnars-dóttir og tekur hún til starfa þann 1.ágúst næstkomandi.
Forsíðumynd: Dúx FG! Agnes Ómarsdóttir ásamt Kristni Þorsteinssyni skólameistara í FG
Ljósmyndarar: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson og Fríða Gylfadóttir.






