Af hverju leyfði hún eiginmanninum að hunsa hana

Allir eru velkominir í lauflétta leshringinn á Bóksafni Garðabæjar í dag, þriðjudaginn 19.apríl kl. 18. Rætt verður um skáldsöguna Konan hans Sverris eftir Valgerði Ólafsdóttur.

Hildur er laus úr erfiðu hjónabandi og styrkur hennar eykst dag frá degi. Hún lítur til baka og hugsar um mynstrin sem við lærum svo rækilega að á endanum vefjast þau um háls okkar eins og níðþungir hlekkir.


Af hverju leyfði hún eiginmanninum, sem í byrjun minnti hana á grískt goð, að: hunsa hana í viku af því hún var glöð í partýi þegar honum fannst ekki gaman, segja henni að enginn annar myndi vilja hana og segja henni að hún væri geðveik? Af hverju beið hún svona lengi með að losa sig?

Þetta er saga um ofbeldi og eftirsjá en einnig um þrautseigju og sátt. Konan hans Sverris er fyrsta skáldsaga höfundar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar