Pælingin: Viðhorf – frelsi eða helsi?

Garðapósturinn fór þess á leit við Sigríði Huldu Jónsdóttur að taka upp þráðinn og skrifa mánaðarlega stutta pistla áfram undir heitinu pælingin. Sigríður Hulda er með MA gráðu í náms- og starfsráðgjöf og MBA í stjórnun og viðskiptum, eigandi SHJ ráðgjafar. Jafnframt er Sigríður Hulda bæjarfulltrúi í Garðabæ.

Pælingin:
Viðhorf – frelsi eða helsi?

Áhrifamikil en ósýnileg – viðhorf okkar í daglegu lífi – til verkefna – fólks – okkar sjálfra. Hugsanlega hefur ekkert eins mikil áhrif á lífsgæði okkar eins og eigin viðhorf. Í dagsins önn gefum við þeim ekki endilega gaum þó svo á sama tíma styrki þau eða veiki stöðu okkar, líðan og færni til að takast á við lífið. Viðhorfin birtast stöðugt í hvernig við nálgumst dagleg verkefni, annað fólk, eigin persónu, áskoranir, samfélagsumræðuna, breytingar, fortíð, nútíð og framtíð. Jafnvel viðhorf okkar til umferðarinnar eða kaffisins á vinnustað hefur áhrif á líðan okkar yfir daginn.

Breyta – breyta viðhorfi?
Að tileinka sér á meðvitaðan hátt ákveðin viðhorf þýðir ekki að maður hliðri sér frá því að breyta og rýna til gagns eða setja mörk í samskiptum. Það er val um nálgun, val um að fljúga stundum hátt – hækka flugið yfir ókyrrðina. Breytum ávallt því sem við getum breytt til batnaðar – veljum viðhorf sem skapa vöxt og tækifæri – viðhorf sem gera okkur frjáls en fjötra okkur ekki í pirring og vanlíðan.

Viðhorf hafa áhrif á lífsgæði
Ýmsar rannsóknir sýna að viðhorf hafa ekki aðeins áhrif á lífsgæði okkar heldur einnig heilsu og lífslíkur. Ef við viljum lífsgæði þurfum við einnig að huga að því að tileinka okkur viðhorf sem skapa styrk, lausn og sanngirni, mynda vöxt og sátt. Viðvarandi neikvæð viðhorf gera okkur súr og svekkt, skapa hindranir, tuð, sundrung, dómhörku, spennu og vanlíðan. Breytum því sem við getum bætt, en ekki er allt innan eigin áhrifahrings. Sumu getum við breytt, öðru ekki, en við höfum alltaf vald til að ákveða hvernig við nálgumst málin. Hverju viljum við sleppa takinu á og hvað viljum við næra?

Val um viðhorf
Er auðvelt að tileinka sér viðhorf? Það er ekki auðvelt en þó mikilvægt. Að vera meðvitaður um hugsanir sínar og viðhorf í eigin garð og annarra, til verkefna og aðstæðna er þjálfun. Þjálfun sem tekur tíma og krefst meðvitundar, vilja og sjálfsaga. Rétt eins og þegar við þjálfum tiltekna vöðva.

Krefjandi aðstæður
Sérstaklega er mikilvægt að velja sér á meðvitaðan hátt viðhorf til þess sem reynir á – eða er hreinlega pirrandi. Viðhorf til krefjandi verkefna, til eigin getu, samstarfsmanns sem getur reynt á þolinmæðina, nágranna, áfalls, unglingsins sem stöðugt er að breytast og vill fara eigin leiðir.

Að mæta sjálfum sér
Viðhorf til eigin persónu og stöðu ræður miklu um farsæld. Treystum við á okkur sjálf í verkefnum lífsins og sköpum þannig með okkur innra öryggi? Að mæta sjálfum sér, eigin skapshöfn, venjum og varnarháttum er áskorun, en eina leiðin til vaxtar og frelsis. Skapar viðhorfið þitt lausn, vöxt eða gleði? Ef ekki – hvers vegna að nota það?

Sigríður Hulda Jónsdóttir,
MBA, MA, eigandi SHJ ráðgjafar, www.shjradgjof.is

Næsta Pæling birtist í september.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar