Börnin bíða í Garðabæ

Biðlistar á leikskólum Garðabæjar eru staðreynd. Hversu óþægilegt sem það er fyrir Sjálfstæðismenn í meirihluta Garðabæjar sem hafa haft uppi metnaðarfull loforð fyrir barnafjölskyldur, um að öll börn skuli hafa pláss á leikskólum við 12 mánaða aldur. Þjónusta við börn hefur löngum verið einkenni bæjarins og hingað hafa barnafjölskyldur flutt til að fá góða þjónustu. 

Sara Dögg segir m.a. að leikskólaplássin séu ekki til. Framkvæmdir eru ekki hafnar, hvorki á nýjum leikskóla í Urriðaholti né fyrirhuguðum færanlegum stofum sem er nýfædd hugmynd meirihlutans til að bregðast við biðlistum sveitarfélagsins

Að sjá formann bæjarráðs halda því fram, að með því að vekja máls á raunverulegri forgangsröðun meirihlutans á bæjarstjórnarfundi fari ég með rangt mál og ljúgi er ný birtingarmynd af málflutningi meirihlutans. Það er formanni bæjaráðs ekki til sóma að halda uppi málflutningi eftir á um stöðu sem tekur breytingum á milli funda. Slíkt getur ekki talist málefnalegt heldur eingöngu til þess fallið að draga fram ranga mynd.

Undanfarin ár hefur meirihlutinn hins vegar ítrekað misreiknað sig í áætlunum um íbúafjölgun komandi árs. Og af því að Sjálfstæðismenn reikna ekki rétt, hefur sveitarfélagið ekki getað undirbúið sig, þannig að sómi sé af, fyrir að taka á móti nýjum bæjarbúum.

Biðlistar eru staðreynd
Hátt í hundrað 4 og 5 ára börnum hefur verið komið fyrir í grunnskólanum í Urriðaholti sem þrengir verulega að grunnskólabörnum í hverfinu og er ekki ásættanleg staða fyrir grunnskólastarfið börn né starfsfólk. 

Það er fagnaðarefni að þeim 104 börnum sem eru fædd árið 2019 eða fyrr og hafa verið á bið eftir leikskólaplássi hafi nú verið innrituð þar sem starfsfólk hefur hlaupið hratt til að bjarga málum. Það var hins vegar ekki upplýst staða þegar umræðan átti sér stað á bæjarstjórnarfundi.
Foreldrar 274 barna fædd árið 2020 hafa staðið í óvissu um hvort og hvernig þeim verði tryggt leikskólapláss fyrir haustið. Starfsfólk leikskólasviðs vinnur hörðum höndum að því að finna lausnir því húsnæðið er ekki fyrir hendi og ekkert í hendi með hvenær þau börn verða öll komin með leikskólapláss. Það er raunveruleikinn.

Leikskólaplássin eru ekki til. Framkvæmdir eru ekki hafnar, hvorki á nýjum leikskóla í Urriðaholti né fyrirhuguðum færanlegum stofum sem er nýfædd hugmynd meirihlutans til að bregðast við biðlistum sveitarfélagsins. Börn munu innritast inn í aðra leikskóla tímabundið þar til þeirra hverfisleikskóli hefur bætt við sig plássum. Og enn önnur munu þurfa að bíða. En um þetta má auðvitað ekki fjalla. Ímynd Garðabæjar er ímynd Sjálfstæðisflokksins og um hana er meirihlutanum meira annt en um raunverulega velsæld barnafjölskyldna.

Þá fyrst er ákveðið að koma fyrir færanlegum skólastofum við Sunnuhvol til að bregðast við skorti á leikskólaplássum í Garðabæ. Við vitum þó ekki hvenær skólastofurnar verða tilbúnar. Biðlistarnir voru fyrirsjáanlegur vandi. Við í Garðabæjarlistanum höfum kallað eftir uppbygginaráætlun og lögðum til síðasta haust að uppbyggingu leikskóla væri komið af stað. En meirihlutinn sá ekki vandann þá. Í stað þess að búa til leikskólapláss var búinn til leikskólabiðlisti. 

Sárt að horfast í augu við sannleikann
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs notaði tækifærið á síðasta fundi bæjarráðs, þar sem ég á ekki sæti, til að bóka sérstaklega um gagnrýni mína á þessa heimatilbúnu leikskólabiðlista og skort á þjónustu og segir hana ranga. Það er gott að koma taka þátt í umræðunni eftir á og byggja á uppfærðum upplýsingum og telja málfutning liðinnar stundar ranga og uppspuna.

Við erum sammála um að það er frábær þróun að fá ungt fjölskufólk í sveitarfélagið. Við í Garðabæjarlistanum viljum bara standa faglega að hlutum, sjá íbúaþróun fyrir og vera tilbúin með þjónustuna. Ítrekað höfum við séð hvernig meirihlutinn í Garðabæ vanáætlar íbúafjölgun, til þess að afkoma í ársreikningi líti betur út. Afleiðingin er að þegar fólk flytur til Garðabæjar, þá er þjónustan sem var búið að lofa ekki fyrir hendi. Þess vegna höfum við mótmælt áætlunum meirihlutans um íbúafjölgun við gerð fjárhagsáætlana. Þess vegna lögðum við til síðasta haust að brugðist yrði strax við skorti á leikskólaplássi.  

Ekki hlustað á fjármálaráðherra eða raunverulegar tölur
Garðabær hefði strax á síðasta árið getað hafið skipulag og byggingu leikskóla sem þörf er á í nýju hverfi. Það hefði líka rímað vel við ákall Bjarna Benediktssonar um auknar fjárfestingar sveitarfélaga. En Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ vildi ekki hlusta á Bjarna, raunverulegar tölur eða staðreyndirnar sem Garðabæjarlistinn lagði fram. Því var ekki byggt upp í samræmi við raunverulega þörf, með öllum þeim óþægindum sem það hefur í för með sér fyrir fjölda fjölskyldna í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir
Höfundur er Oddviti Garðabæjarlistans.

Forsíðumynd: Urriðaholt.is

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar