Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs. Þeir listamenn koma einir til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi.
Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn til að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi.
Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.
Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og ábendingar.
Í þeim skulu koma fram upplýsingar um náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um með hvaða móti bæjarlistamaður hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa.
HÆGT ER AÐ SENDA INN UMSÓKN EÐA ÁBENDINGU FYRIR 16. APRÍL Á NETFANGIÐ [email protected].
Mynd: Jazzpíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir er bæjarlistamaður Kópavogs 2021