Ungir sýningarstjórar sýndu verk sín á Vatnsdropanum

Það var margt um manninn þegar Vatnsdropinn Listhátíð var haldin við Menningarhúsin um helgina.
Ungir sýningarstjórar, grunnskólabörn í Kópavogi á aldrinum 8-14 ára sýndu þar verkefni sín og héldu vinnusmiðjur en undirbúningur hafði staðið yfir frá því í janúar. Unnu þau út frá norrænum klassískum barnabókmenntum, Heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna nr. 15 um Líf á landi og umhverfismálum.
Á bókasafninu var boðið upp á fræðslu um matarrækt, hlaðvarp um dýr í útrýmingarhættu og Ljóðabók náttúrunnar en í Gerðarsafni var það ljósmyndasýningin Óboðinn gestur sem fangaði augað. Á útisvæðinu gátu gestir smíðað dýr úr húsgögnum og afgangsefnivið ásamt því að sá fræjum til að rækta heima fyrir.
Í ávarpi sínu sögðu hinir ungu sýningarstjórar frá hugmyndum og framkvæmd verka sinna, hvernig útkoman varð til, þá flutti Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri ávarp en það voru börnin ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfisráðherra sem opnuðu hátíðina við mikinn fögnuð viðstaddra.

Lína Langsokkur fræddi síðan gesti og gangandi um sýninguna með sínu nefi.

Verk ungu sýningarstjóranna verða uppi næstu tvær vikurnar en þau eru grunnur að kennsluverkefnum sem boðin verða grunnskólum Kópavogs næsta vetur.

Markmið Vatnsdropans er að gera börn að virkum þátttakendum í menningarstarfi bæjarins og með vinnu hinna ungu sýningarstjóra er lagður góður grunnur að því.

Vatnsdropinn er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem Kópavogur stofnaði til og fékk H.C. Andersen safnið í Danmörku, Múmínsafnið í Finnlandi og Undraland Ilon Wikland í Eistlandi til samstarfs við sig. Í öllum þessum samstarfssöfnum eru ungir sýningarstjórar að störfum og verða niðurstöður þeirrar vinnu kynnt seinna á árinu. Vatnsdropinn er þriggja ára samstarfsverkefni þessara menningarstofnana og lýkur því á næsta ári.

Vatnsdropinn, ungir sýningarstjórar 2022 eru:
Agla Björk Egilsdóttir 12 ára
Ágústa Lillý Valdimarsdóttir 10 ára
Birta Mjöll Birgisdóttir 10 ára
Brynja S. Jóhannsdóttir 9 ára
Elena Ást Einarsdóttir 10 ára
Friðrika Eik Z. Ragnars 10 ára
Héðinn Halldórsson 10 ára
Inga Bríet Valberg 8 ára
Karen Sól Heiðarsdóttir 10 ára
Lóa Arias 10 ára
Matthildur Daníelsdóttir 11 ára
Sigurlín Viðarsdóttir 13 ára
Sóllilja Þórðardóttir 10 ára
Þóra Sif Óskarsdóttir 14 ára

Forsíðumynd: Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, opnaði hátíðina ásamt sýningarstjórunum

Sýningarstjórarnir á Vatnsdropanum
Inga Bríet og Þóra Sif lýsa sínu verkefni fyrir fjölmiðlakonu

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar