Um 75% foreldra og iðkenda ánægð eða frekar ánægð með þjónustu HK

Niðurstöður viðhorfskönnunar sem gerð var meðal foreldra og iðkenda HK haustið 2023 liggja nú fyrir.

Félagið er í miklum vexti og greinilegt að iðkendur og foreldrar þeirra eru ánægðir með það gróskumikla starf sem unnið er í félaginu. Um 75% þátttakenda segjast vera mjög ánægð eða frekar ánægð með þjónustu HK og rúmlega 90% segjast vera mjög ánægð eða frekar ánægð með aðstöðuna. Í ljós kemur einnig að mikil ánægja er með þjálfara HK sem og framfarir ásamt auknu sjálfstrausti iðkenda. Auk þess sýna niðurstöður að foreldrar eru ánægðir með æfingatíma, æfingamagn og áherslur í þjálfun.

Erum hvergi nærri hætt

,,Það er mikilvægt að kortleggja hvað er gott og hvar tækifæri eru til betrumbóta. Þrátt fyrir góðar niðurstöður í þessari könnun erum við hvergi nærri hætt. Þvert á móti eflir þetta okkur til að gera enn betur á öllum sviðum,” segir Sandra Sigurðardóttir framkvæmdastjóri HK og bætir við: ,,Framundan er mikil uppbygging á svæðinu og hlökkum við mikið til að sjá fyrstu skóflustunguna að nýrri stúku sem kemur til með að rísa hjá okkur. Stúkan og gervigrasið koma til með að vera mikil lyftistöng fyrir efri byggð Kópavogs. Við bindum líka vonir við það að samhliða þessum framkvæmdum fáum við félagsaðstöðu. Við fögnum því að Kópavogsbær setji uppbyggingu íþróttamannvirkja í forgang.”

Foreldrastarfið mikilvægt

,,Markmið félagsins er að huga að æskulýðsstarfinu á sama tíma og við bjóðum upp á samkeppnishæfa aðstöðu og framúrskarandi þjálfun á öllum stigum. Foreldrastarfið er ekki síður mikilvægt og í raun undirstaða alls, við erum svo heppin að foreldrastarfið er öflugt hjá HK en okkur vantar alltaf fleiri sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Það er alltaf pláss fyrir fleiri sjálfboðaliða,” segir hún og bætir við að lokum. ,,Við í HK höldum ótrauð áfram að byggja ofan á það góða starf sem hér er unnið og hlökkum til að gera enn betur.”

Forsíðumynd: ,,Markmið félagsins er að huga að æskulýðsstarfinu á sama tíma og við bjóðum upp á samkeppnishæfa aðstöðu og framúrskarandi þjálfun á öllum stigum. Foreldrastarfið er ekki síður mikilvægt og í raun undirstaða alls,” segir Sandra Sigurðardóttir framkvæmdastjóri HK

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins