Til hamingju með nýja miðstöð menningar og vísinda

Fyrir réttu ári síðan ákvað bæjarstjórn að ráðast í algjöra endurhönnun á rýminu sem hýsir Náttúrufræðistofu og barnabókadeild Bókasafns Kópavogs. Nú er komið að opnun þessa glæsilega rýmis þar sem saman koma í einum stað glæný sýning á undraheimi úr safneign Náttúrufræðistofu Kópavogs og skapandi les- og leikrými í barnabókadeildinni sem býður upp á ótal möguleika fyrir börn og fjölskyldur.

Af þessu tilefni verður haldin opnunarhátíð fyrir bæjarbúa og aðra áhugasama laugardaginn 11.maí, á afmælisdegi Kópavogs. Hátíðarhöldin hefjast klukkan 13 og standa til 16.

Í hinu nýja rými er einnig glæsilegt smiðjurými sem mun nýtast öllum menningarhúsunum til að taka á móti hópum og skipuleggja menningarstarf og viðburði af ólíkum toga. Þessi miðstöð menningar og vísinda er einstök ef litið er til samlegðar alls þess glæsilega menningarstarfs sem fram fer í Kópavogi og þess vegna er vel við hæfi að færa Kópavogsbúum hana á afmælisdeginum sjálfum.

Sérstaklega hefur vel tekist til með hönnun safnsins og vandað vel til verksins enda viðbúið að bæjarbúar munu venja komur sínar oft í þessar glæsilegu vistarverur menningar og vísinda. Birta og litagleði flæðir um rýmið og alltaf er hægt að uppgötva eitthvað nýtt í hverri heimsókn því til stendur að bæta við sýningu og upplifun gesta jafnt og þétt.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur kæru bæjarbúar við opnunina 11. maí þar sem boðið verður upp á veitingar fyrir börnin og glæsilega dagskrá á útisvæði við menningarhúsin og inni í nýju rými Bókasafnsins og Náttúrufræðistofu.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar