Þjófur og lík eftir Dario Fo – Tveir bráðskemmtilegir farsar hjá Leikfélagi Kópavogs

Vegna fjölda áskorana setur Leikfélag Kópavogs upp fjórar aukasýningar á Þjófar og Lík í Funalind 2 í Kópavogi. Þetta eru tvö leikverk eftir ítalska nóbelsskáldið Dario Fo. Verk hans byggja á gamalli ítalskri leikgerð, Commedia dell’arte, sem einkennist af ærslaleik, flækjum, framhjáhöldum og þversögnum. Farsarnir tveir sem sýndir verða eru annars vegar “Lík til sölu” undir stjórn Arnars Alexanderssonar.  Þar segir frá gráðugum kráareiganda sem gerir allt sem í hans valdi stendur til að svíkja fé út úr kráargestum með aðstoð heillandi dóttur sinnar og fúla félaga síns.

Hins vegar er það leikritið “Betri er þjófur í húsi en snurða á þræði” undir stjórn Sigrúnar Tryggvadóttur. Þar segir frá innbrotsþjófi sem lendir í óheppilegum aðstæðum í mislukkuðu innbroti í glæsihýsi. Inn í leikritið fléttast svo sveimhuga sviðsmenn sem framkalla leikrit inn í leikriti. Verkefnið er styrkt af Kópavogsbæ. Ekki láta þessar stórskemmtilegu sýningar fram hjá þér fara, en aukasýingarnar eru í kvöld kl. 20. (19. febrúar), 22. og 24. febrúar og 1. mars. Allar sýningarnar hefjast kl. 20.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar