Sumarlokun leikskóla frá 12. júlí til 9. ágúst.

Á síðasta fundi leikskólanefndar var lög fram tillaga að sumarlokun leikskóla Kópavogs fyrir sumarið 2023, en leikskólanefnd leggur til að sumarlokun leikskóla verði 12. júlí til 9. ágúst 2023 og að fjögurra vikna lokun verði hér eftir á þessum tíma árs.

Vegna frágangs og undirbúnings lokar leikskólinn kl. 13.00 11. júlí og opnar kl. 13.00 10. ágúst.
,,Þetta eykur fyrirsjáanleika fyrir fjölskyldur og starfsfólk leikskóla. Undanfarin ár hefur þessi tími verið valinn af foreldrum og starfsfólki allra leikskóla Kópavogs. Jafnframt hentar þetta mjög vel aðlögun nýrra barna og skipulagningu faglegs starfs þ.e. skýr skil eru um upphaf og lok skólaársins auk þess sem foreldrar geta gengið að því vísu í upphafi skólaárs,” segir í tillögu leikskólanefndar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar