Kópavogur í 4. sæti yfir flesta háskólamenntaða íbúa á landinu

Hagstofan birti á dögunum niðurstöður um landsmenn eftir menntunarstöðu 1. janúar 2021 og þar kom í ljós að Kópavogur er með fjórða hæst hlutfall háskólamenntaðra árið 2021 eða 40,2% Kópavogsbúa er með háskólamenntun 25 ára og eldri, en það er Seltjarnarnesbæ (54,2%) en Garðabær var með næst hæsta hlutfallið (47,%) og Reykjavíkurborg (41,5%).

Í Kópavogi hækkaði þetta hlutfall á milli áranna 2011 og 2021 úr 32,5% árið 2011 í 40,2% árið 2021, svo hækkunin er nokkuð vegleg eða 9,7% en það er aðeins Seltjarnarnesbær sem hlutfallið hækkar meira eða um 10%.

Hlutfall háskólamenntaðra hækkaði á meðan hlutfall starfsmenntaðra lækkaði

Hlutfall háskólamenntaðra í manntalinu 2021 hækkaði í nær öllum sveitarfélögum landsins frá síðasta manntali árið 2011. Öðru máli gegndi um starfsmenntun á framhaldsskólastigi og viðbótarstigi en hlutfall þeirra sem voru með starfsmenntun sem hæstu gráðu lækkaði í 37 af 69 sveitarfélögum.

Hlutfall háskólamenntaðra íbúa landsins 25 ára og eldri hækkaði frá síðasta manntali, var 27,7% árið 2011 en 34,6% í manntalinu 2021. Hlutfall með starfsmenntun á framhaldsskólastigi var hins vegar 24,6% árið 2011 en 22,4% árið 2021 og hafði því lækkað.

Í stærstu sveitarfélögunum lækkaði hlutfall íbúa með starfsmenntun mest í Seltjarnarnesbæ, um 6,5% en í Kópavogi lækkaði hún um 3,5%, fór úr 26,6% í 23,1%

Konur fleiri en karlar á meðal háskólamenntaðra fram til 65 ára aldurs

Alls voru 49.058 konur og 35.712 karlar 25 ára og eldri með háskólamenntun í manntalinu 2021. Flestir voru í aldurshópnum 35-44 ára og voru konur tæp 60% háskólamenntaðra í þessum aldursflokki. Konur voru talsvert fleiri í öllum aldursflokkum háskólamenntaðra fram til 65 ára aldurs.

Hagstofan bauð ekki upp á þann möguleika að sjá muninn á mill háskólamennt- aðra kvenna og karla eftir sveitarfélögum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar